Tónlist

Palli gerir tilraun með endurútgáfu

Freyr Bjarnason skrifar
Palli í góðu stuði í Fjallsárlóni. Hann ætlar að endurútgefa sex plötur sínar.
Palli í góðu stuði í Fjallsárlóni. Hann ætlar að endurútgefa sex plötur sínar. mynd/lalli sig
„Ég er forvitinn að sjá hvernig kúnninn tekur í þetta,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson.

Ellefta nóvember ætlar að hann að endurútgefa sex plötur sínar sem margar hafa ekki verið fáanlegar lengi á geisladiskum. Þær verða í tveimur þriggja platna boxum, sem kallast Bláa- og Rauða boxið, og kostar hvort þeirra 2.490 krónur.

Plöturnar sem um ræðir eru Palli, Stereo með hljómsveitinni Casino, Ef ég sofna ekki í nótt með hörpuleikaranum Moniku, Seif, Deep Inside og Allt fyrir ástina. Alls verða á þeim þrettán aukalög, mörg hver óútgefin.

„Aðdáendur mínir eru búnir að hlaða inn hverju einasta lagi sem ég hef sungið í lífinu, bæði inn á YouTube og á skráaskiptasíður. Allar þessar plötur eru aðgengilegar á netinu. Tilraunin mín felst í því hvað kúnninn gerir þegar hann sér þessar gömlu plötur í föstu formi í svona boxum fyrir ómótstæðilegt verð,“ segir Páll Óskar, sem náði góðum „díl“ hjá geisladiskaverksmiðju í Litháen og í gegnum Myndbandavinnsluna og tókst því að halda verðinu í lágmarki.

Sjálfur segist Palli vera sjálfstæður plötuútgefandi, sem þarf að ná inn kostnaðinum við hvert verkefni, jafnvel þótt um endurútgáfu sé að ræða. „Ég veit ekkert hvað ég er að fara út í en þetta er tilraun sem er vel þess virði að gera.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.