Porsche Cayenne lækkar um milljón Finnur Thorlacius skrifar 17. janúar 2014 16:22 Porsche Cayenne.
Bílabúð Benna hefur kynnt lækkun á Porsche Cayenne Diesel sem fyrirtækið er umboðsaðili fyrir. “Hjá Bílabúð Benna er lögð áhersla á að lækka verð á bílum þegar styrking krónunnar gefur svigrúm til þess,” segir Thomas Már Gregers, sölustjóri Porsche á Íslandi. Þessi margverðlaunaði sportjeppi lækkar um eina milljón og kostar nú 13.950 þús. krónur. “Við vekjum athygli á að Porsche Cayenne er afar vel búinn. Hann er til að mynda með leðurinnréttingu, rafdrifin framsæti með hita, tvöfalda sjálfvirka miðstöð með loftkælingu, fullkomið hljómkerfi, sport leðurstýri, skriðstilli, LED dagljósabúnað og 18 tommu álfelgur og margt fleira girnilegt. Þetta eru kostir sem oftar en ekki þarf að borga aukalega fyrir hjá framleiðendum lúxusbíla“, segir Thomas. Af þessu tilefni verður Bílabúð Benna með sýningu í Porsche salnum, Vagnhöfða 23, laugardaginn 18. janúar, frá kl. 12:00 til 16:00.
Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent