Arðgreiðslur skila mun meira en fjárlög áætluðu Elimar Hauksson skrifar 7. mars 2014 20:30 Daníel segir að ef aðhalds verði gætt í ríkisrekstri megi búast við að tekjuafgangur ríkissjóðs verði nærri 20 milljörðum króna.
Í fjárlagafrumvarpi ársins 2014 var gert ráð fyrir 8,1 milljarða króna arð í ríkissjóð frá fjármálastofnunum. Sé miðað við að tuttugu milljarða króna arðgreiðsla Landsbankans verði samþykkt á aðalfundi bankans má búast við að heildararðgreiðslur til ríkissjóðs frá viðskiptabönkunum þremur verði 21,1 milljarður en það er 13 milljörðum meira en fjárlög gerðu ráð fyrir. Ríkið er aðaleigandi Landsbankans með 97,7% eignarhlut en arðgreiðslur frá hinum bönkunum eru töluvert lægri, tæpur milljarður vegna 13% hlutar í Arion banka og tæpur hálfur milljarður vegna 5% hlutar í Íslandsbanka.Daníel Svavarsson, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans segir þetta vera góð tíðindi fyrir ríkissjóð og ef aðhalds verði gætt í ríkisrekstri megi búast við að tekjuafgangur ríkissjóðs verði nærri 20 milljörðum í stað tæplega milljarðs eins og fjárlög gerðu ráð fyrir. Daníel bætir við að búast megi við að tekjuskattur á lögaðila verði hærri en áætlað var vegna góðrar afkomu skráðra félaga hér á landi. „Það eru umtalsverðar arðgreiðslur til annarra eigenda bankanna en ríkissjóðs og af því innheimtir ríkið um 20 prósenta tekjuskatt. Ef við reiknum þær tekjur auk skattekna af skráðum félögum þá má reikna með að til viðbótar komi um sex milljarðar,“ segir Daníel.Bjarni Benediktsson segir þetta góð tíðindi fyrir ríkissjóð. „Ég sé fyrir mér að þetta auki svigrúm til þess að lækka til dæmis skuldir og koma til móts við óvænt áföll ef einhver verða,“ segir Bjarni og bætir við að ríkið hafi lagt gríðarlega fjármuni í að tryggja endurreisn bankakerfisins og nú horfi til þess að ríkið geti endurheimt þann mikla kostnað.
Mest lesið Breytingar í vinnunni: Hvað þýðir þetta fyrir mig? Atvinnulíf Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Íslenska ánægjuvogin: Viðskiptavinir Indó og miðaldra konur ánægðust Neytendur Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Viðskipti innlent Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Fleiri fréttir Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Sjá meira