CCP tapaði 2,4 milljörðum 14. mars 2014 17:49 Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP.
Bókfært tap tölvuleikjaframleiðandans CCP á árinu 2013 nam 21, 3 milljónum Bandaríkjadala, eða tæpum 2,4 milljörðum íslenskra króna. Þetta kemur fram í ársuppgjöri fyrirtækisins sem opinberað var í dag. Tapið er tilkomið vegna aukningar í afskriftum og niðurfærslu óefnislegra eigna. „Þessi niðurfærsla hefur þó ekki áhrif á fjárstreymi félagsins,“ segir í tilkynningu frá félaginu. „Gjaldfærður rannsóknar- og þróunarkostnaður jókst um 40 milljónir Bandaríkjadala vegna verulegrar aukningar í afskriftum auk niðurfærslu á eignfærðum þróunarkostnaði frá fyrri tímabilum. Þessi niðurfærsla, sem nemur alls 21,5 milljónum dala án skattaáhrifa, á sinn þátt í því að félagið skilar bókfærðu tapi og er liður í endurskoðun á þróunarferlum og vöru áætlunum félagsins fyrir árið 2014.“ Tekjur CCP jukust um 17,5% á milli ára, en þær námu 76,7 milljónum dala í fyrra. Framlegð nam 69,8 milljónum Bandaríkjadala miðað við 60,5 milljónir dala árið áður, sem er aukning um 15,5% Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir að árið 2013 hafi verið mikilvægt fyrir CCP og að það hafi leitt til metárs í tekjum félagsins. „Hins vegar leiddi niðurfærsla óefnislegra eigna til bókfærðs taps á árinu,“ segir Hilmar í tilkynningunni. „Við erum að gera upp fortíðina og taka tillit til breyttra forsenda og áherslubreytinga sem orðið hafa með það að leiðarljósi að styrkja og efla rekstur félagsins, sem og að skapa starfsfólki okkar og þróunarteymum réttar aðstæður til framtíðar“.
Mest lesið Breytingar í vinnunni: Hvað þýðir þetta fyrir mig? Atvinnulíf Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Íslenska ánægjuvogin: Viðskiptavinir Indó og miðaldra konur ánægðust Neytendur Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Viðskipti innlent Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Fleiri fréttir Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Sjá meira