Bílabúð Benna tekur við Opel umboðinu af BL Finnur Thorlacius skrifar 31. mars 2014 15:23 Erna Gísladóttir forstjóri BL og Benedikt Eyjólfsson eigandi Bílabúðar Benna handsala samning um framtíðarskipan Opel á Íslandi
Bílabúð Benna hefur í samstarfi við General Motors (GM), framleiðanda Opel og Chevrolet, komist að samkomulagi um að Bílabúð Benna taki við umboði fyrir Opel á Íslandi. „Jú það er rétt, Bílabúð Benna mun taka við Opel á Íslandi, enda Opel í eigu General Motors, sem einnig framleiðir Chevrolet. Bílabúð Benna tekur yfir alla þjónustu við Opel viðskiptavini á næstunni.“; sagði Skúli K. Skúlason, framkvæmdastjóri sölusviðs BL ehf., sem vill nota tækifærið og þakka öllum Opel viðskiptavinum BL fyrir ánægjuleg viðskipti á liðnum árum. „Það eru spennandi tímar framundan fyrir Bílabúð Benna. Við höfum náð flottum árangri með Chevrolet á undanförnum árum og nú bætum við Opel í okkar vöruframboð. Við munum leggja áherslu á að veita Opel eigendum fyrsta flokks þjónustu hér eftir sem hingað til ásamt því að bjóða gott úrval bíla á samkeppnishæfum verðum. “ segir Benedikt Eyjólfsson, eigandi Bílabúðar Benna ehf. Rætur Opel ná meira en öld aftur í tímann þegar Adam Opel lagði grunninn að fyrirtækinu. Í meira en 110 ár hefur Opel hannað bíla, undir einkunnarorðunum „Wir leben Autos“ eða „Við lifum fyrir bíla“. Opel eru vinsælir um allan heim og á einnig farsæla sögu hér á landi. Það má því segja að Opel, sem lifir fyrir bíla, eigi vel heima hjá Bílabúð Benna, sem hefur verið drifið áfram af einskærum bílaáhuga í tæplega 40 ára sögu fyrirtækisins.
Mest lesið Notuðu myndavélar klerkastjórnarinnar til að fella Khamenei Erlent „Okkar bestu menn valdir í afísinguna“ Innlent „Hætt við því að byggingamarkaðurinn fari í frost“ Innlent Fluginu aflýst eftir að vélin rann út af akbraut Innlent Mikið að gera á mörgum vígstöðvum Innlent Viðræður eða ekki viðræður, þarna er efinn Erlent Ein lægð fjarlægist en önnur djúp nálgast Veður Flugvél fór út af og öllum brautum lokað Innlent Fylgi Samfylkingar ekki verið minna í eitt ár Innlent Rannsökuðu ekki nauðgun og báðu sakborning afsökunar Innlent