Tónlist

Pussy Riot í pallborðsumræðu á pönktónlistarhátíð

Pussy Riot
Pussy Riot Vísir/Getty

Fyrr í vikunni tilkynntu skipuleggjendur Riot Fest, sem eru þrjár aðskildar pönktónlistarhátíðir haldnar í september í Toronto, Chicago og Denver, hvaða hljómsveitir koma til með að spila á hátíðunum. 

The Cure, The National, Weezer, Social Distortion, The Flaming Lips, Slayer and Wu-Tang Clan spila bæði í Chicago og Denver.

Auk þess spila í Chicago Jane's Addiction, The Offspring, Patti Smith, Samhain, Metric, Tegan and Sara, Superchunk og hljómsveit barnastjörnunnar Macaulay Culkin, sem er Velvet Underground cover-hljómsveit og heitir Pizza Underground. Hátíðin er haldin frá 12.-14. september.

Nadya Tolokonnikova og Masha Alekhina úr Pussy Riot taka þátt í sérstökum pallborðsumræðum sem haldnar verða á hátíðinni í Chicago.

Á hátíðinni í Denver, sem haldin er í 19.-21. september spila Primus, TV on the Radio, Violent Femmes, Bob Mould, Dum Dum Girls og Glassjaw.

Hátíðin í Toronto, er haldin dagana 6.-7. september en þar koma fram hljómsveitir á borð við Death Cab for Cutie, Brand New, Dropkick Murphys, The New Pornographers og Alkaline Trio.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×