Vænta 2,4 prósent verðbólgu Bjarki Ármannsson skrifar 22. maí 2014 17:01 Seðlabankinn hefur birt niðurstöður úr könnun sinni sem gerð var nú í maí. Vísir/Pjetur
Væntingar markaðsaðila um ársverðbólgu til skamms tíma hafa lækkað frá því í febrúar samkvæmt könnun Seðlabankans. Þetta kemur fram í frétt á vef bankans. Miðað við miðgildi svara í könnuninni, sem gerð var nú í maí, vænta markaðsaðilar þess að ársverðbólga verði að meðaltali um 2,4 prósent á öðrum og þriðja fjórðungi þessa árs, sem er um 0,4-0,6 prósentum minni verðbólga en gert var ráð fyrir í síðustu könnun. Samkvæmt könnuninni vænta markaðsaðilar þess að ársverðbólga verði 3,1 prósent eftir eitt ár og 3,5 prósent eftir tvö ár sem er svipuð niðurstaða og í könnuninni í febrúar. Í könnuninni í maí voru þeir markaðsaðilar sem væntu þess að verðbólga yrði ekki við 2,5% markmið Seðlabankans til lengri tíma litið beðnir um að svara því hvers vegna þeir teldu að svo yrði ekki. Langstærstur hluti þeirra taldi ytri skilyrði vera meginástæðu þess að bankinn geti ekki haldið verðbólgu við markmið til langs tíma litið. Könnunin fór þannig fram að Seðlabankinn spurði um væntingar markaðsaðila til ýmissa hagstærða, svo sem verðbólgu. Leitað var til 31 markaðsaðila á skuldabréfamarkaði og var svarhlutfallið 74 prósent.
Mest lesið Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Samstarf Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Samstarf Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Vá en æðislegt: Fundurinn fellur niður í dag! Atvinnulíf Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira