Bílasala eykst um rúmlega 30% á fyrstu 7 mánuðum ársins Finnur Thorlacius skrifar 5. ágúst 2014 10:50 Meðaleyðsla nýskráðra bíla hefur lækkað mjög hratt á síðustu árum.
Bílasala á Íslandi hefur aukist um rúmlega 30% á fyrstu sjö mánuðum ársins. Alls hafa verið skráðir 7.120 fólksbílar sem eru 1.646 fleiri fólksbílar en skráðir voru á sama tímabili í fyrra. Í fyrra voru skráðir allt árið rétt tæplega 7.300 bifreiðar, þannig að gera má ráð fyrir því að fljótlega í ágústmánuði verði búið að skrá jafn margar nýjar bifreiðar og allt árið 2013. „Bílasala hefur tekið hressilega við sér, og á það jafnt við um fólksbíla, atvinnubíla og vörubíla. Bílaleigur eiga þó mestan þátt í þessari aukningu í fólksbílasölunni, en rétt rúmlega 4.000 bílaleigubílar hafa verið skráðir á árinu. Sala til einstaklinga og fyrirtækja er þó meiri en hún var í fyrra og um 3.000 bílar hafar verið seldir til þeirra en það er um 15% aukning frá fyrra ári. Það er ágætt en meira þarf til að eðlileg endurnýjun flotans eigi sér stað,“ segir Jón Trausti Ólafsson, formaður Bílgreinasambandsins. „Stöðugra gengi krónu og óhagstæð aldursamsetning flotans eru þeir þættir sem helst knýja þetta áfram að mínu mati. Það er mikill ávinningur í því að reka nýjan bíl samanborið við 10-15 ára bíla, en meðalaldur bíla á Íslandi er 12 ár. Eyðslan hefur lækkað mjög hratt en að meðaltali eyðir nýskráðir bíll á Íslandi á þessu ári 5,4 lítrum að meðaltali á hundraðið á meðan nýskráður bíll árið 2002 eyddi að meðaltali tæpum níu lítrum á hundraðið,“ segir Jón Trausti.Stuðningur við rafbílavæðingu haldi áfram ,,Annar þáttur sem skiptir miklu máli er öryggið en í dag eru langflestir bílar búnir öryggisbúnaði eins og stöðugleikastýringu, 5 þriggja punkta öryggisbeltum, loftpúðum í hliðum, þráðlausum símabúnaði og fleira. Vörugjöld verðlauna í dag þá bíla sem eru með lága eyðslu og lægra CO2 útblástursgildi og því er verið að beina flotanum í þá áttina. Við hjá Bílgreinasambandinu teljum mikilvægt að tollar á öryggisbúnaði séu lækkaðir svo sem á varahlutum eins og bremsubúnaði, hjólbörðum og slíkum búnaði sem tryggir að nauðsynlegt viðhald geti átt sér stað, á þessum gamla flota sem hér er á götunum. Þá er mikilvægt að stuðningur við rafbílavæðingu haldi áfram á meðan tæknin er í þróun og uppbygging innviða rafbílavæðingar eigi sér stað. Það er mjög kostnaðarsamt að kynna rafbíla til leiks bæði í tækni, búnaði og innri strúktur. Þess vegna viljum við að áframhaldandi stuðningur við rafbílavæðinguna eigi sér stað, svo sem með niðurfellingu vörugjalda, virðisaukaskatts og fleiri þátta. Í mörgum löndum koma einnig til frekari greiðslur frá stjórnvöldum sem styðja við vistvænar samgöngur,“ segir Jón Trausti ennfremur.
Tengdar fréttir Range Rover selst eins og heitar lummur Alls hafa selst 35 jeppar af gerðinni Range Rover það sem af er ári hjá B&L. Allt árið 2013 seldust tuttugu bílar sömu gerðar. Um 75 prósenta aukningu er að ræða á milli ára. 14. júlí 2014 11:05 Mest lesið „Þetta verður allt saman stórvarasamt í fyrramálið“ Veður Spyr hvort ökumenn myndu keyra á gangandi á götunni Innlent Myndskeiðið segi ekki alla söguna Innlent Ein hinna reknu segir konunum kastað fyrir ljónin Innlent Fastur heima í þrjá daga út af engum mokstri Innlent „Auðvitað slær þetta mig ekki vel“ Innlent Kallar Biden ljótan að utan sem innan og vill hann í fangelsi Erlent Svipt barnabótunum vegna flugmiðakaupa Erlent „Fyrstu þrjú árin sem ég var veik voru algjört helvíti“ Innlent Útlit fyrir nauman sigur frjálslyndra og fyrsta samkynheigða forsætisráðherra landsins Erlent
Range Rover selst eins og heitar lummur Alls hafa selst 35 jeppar af gerðinni Range Rover það sem af er ári hjá B&L. Allt árið 2013 seldust tuttugu bílar sömu gerðar. Um 75 prósenta aukningu er að ræða á milli ára. 14. júlí 2014 11:05