Tónlist

Megas á besta, íslenska ástarlagið

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Lífið á Vísi leitaði til valinkunnra álitsgjafa til að velja besta, íslenska ástarlagið í íslenskri tónlistarsögu.

Tvær stjörnur með Megasi vann afgerandi sigur en fast á hæla Megasar fylgir Skólaball eftir Magnús Kjartansson og Þú átt mig ein eftir Vilhjálm Vilhjálmsson. Bubbi Morthens á tvö lög á topp tíu listanum, Með þér annars vegar og Rómeó og Júlía hins vegar.





1. sæti:


Tvær stjörnur

Lag og texti: Megas

„Ég vil meina að þetta sé besta íslenska lag sem samið hefur verið. Jafnvel bara í heiminum.“

„Án efa langbesta íslenska ástarlagið. Það eru fá lög sem snerta mann jafn djúpt.“

„Tvær stjörnur er einfaldlega einn fallegasti íslenski texti sem hefur verið saminn. Hver einasta setning er svo rík og mögnuð að ég fæ gæsahúð að lesa hann yfir. Þetta er líka ekki bara ástarlag, það tekur á ást, lífinu, söknuði, sorg, minningum og einhvers konar uppgjöri og sátt við liðinn tíma... og allt í örfáum erindum. Alveg stórkostlegt!“





2. sæti:


Skólaball

Lag og texti: Magnús Kjartansson

„Lenti í svipaðri aðstöðu og textinn segir.  Var voðalega skotinn í einni en hún hafði lítinn áhuga á mér, ég var ekki nógu mikill „vondur“ strákur fyrir hana. Hún hélt mér heitum svona til vara, en ég lærði og varð síðar „vondi“ strákurinn. Núna þegar ég hlusta á textann hugsa ég: Gaur, snúðu við, finndu aðra. She´s not worth it .“

„Pabbi samdi það og það er um mömmu. Ég verð ævinlega þakklát manninum sem dömpaði mömmu þetta kvöld.“





3. sæti:


Þú átt mig ein

Texti: Vilhjálmur Vilhjálmsson

Lag: Magnús Þór Sigmundsson

„Það er svo fallegur texti og svo fallegur söngur. Kveikir alltaf á tárakirtlunum.“

„Það er leitun að fegurra lagi.“





4. sæti:


Með þér

Lag og texti: Bubbi Morthens

„Einstaklega vel heppnað ástarlag. Þar sem textinn sýnir ástina eins og hún er.“

„Hvort sem það er Bubbi, Ragnheiður eða einhver annar sem syngur þá stendur þetta lag fyrir sínu og textinn bara svo einlægur og fallegur. Kannski orðið að svolítilli klisju eftir að vera spilað í öðru hverju brúðkaupi, en lög geta ekki orðið að klisju nema vera nógu góð til að vera ofspiluð...“





5. sæti:


Þú fullkomnar mig

Texti: Stefán Hilmarsson

Lag: Guðmundur Jónsson

„Fólk sem grætur ekki vegna ástartryllings þegar það heyrir þetta lag er bælt og dáið að innan.“





6. sæti:


Rómeó og Júlía

Lag og texti: Bubbi Morthens

„Lenti á vondum stað í lífinu og fór kannski á svipaða staði og hann Bubbi og svo margir aðrir. Í því ferli hitti ég eina mjög svo indæla stelpu sem lífið ákvað að hjálpa engan veginn. Það stutta sem við höfðum saman áður en hún yfirgaf þennan heim var mjög djúpt og hjálpaði mér að komast af mínum dökka stað.  Þetta var lag sem við hlustuðum mikið á saman. Hvíldu í friði mín Júlía.“

„Þetta er eitt allra besta lag kappans og auðvitað um þessa frægu ástarsögu Shakespeare. Hef alltaf haldið upp á þetta lag og eitt þeirra sem ég reyni að raula með þegar ég er einn í bílnum og enginn heyrir.“





7. sæti:


A Hundred Reasons

Texti: Haukur Heiðar Hauksson

Lag: Ólafur Arnalds


„Allt eftir Ólaf Arnalds nær mér.“

„Þetta lag er best.“





8. sæti:


Ást

Texti: Sigurður Nordal

Lag: Magnús Þór Sigmundsson

„Þegar ég heyri þetta lag langar mig að hlaupa berfætt út í náttúruna, búa til kórónu úr týpulegum sveitablómum og gifta mig í lítilli sveitakirkju.“





9. sæti:


Flugvélar

Texti: Björn Jörundur Friðbjörnsson

Lag:Jón Ólafsson

„Lagið og textinn bera mann upp í 40.000 fet.“





10. sæti:


Þó líði ár og öld

Lag: M. Brown, B. Galilli og T. Sansone

Texti: Kristmann Vilhjálmsson

„Engu líkt, hinn eini sanni ástarsöngur.“



Önnur lög sem voru nefnd:

Ég tala um þig, Ég er að bíða, Ástarbréf merkt X, Ég gef þér allt mitt líf, Þú komst við hjartað í mér, Heyr mína bæn, Okkar nótt, Einhvers staðar, einhvern tímann aftur, Ást er æði, Ég bið að heilsa, David, Thank You, Danska lagið, Sagan af Nínu og Geira, Í fjarlægð, Dagný, Ástarsorg, Vísur Vatnsenda-Rósu, Hvítir mávar, Ég veit þú kemur.

Álitsgjafar:

Aníta Briem, leikkona,

Árni Björn Helgason, yfirmaður erlendrar framleiðslu hjá Sagafilm,

Ásgeir Erlendsson, sjónvarpsstjarna,

Einar Bárðarson, forstöðumaður Höfuðborgarstofu,

Guðjón Davíð Karlsson, leikari,

Guðmundur Elías Knudsen, dansari og nemi,

Gunnella Hólmarsdóttir, leikkona,

Hallveig Rúnarsdóttir, söngkona,

Ísgerður Gunnarsdóttir, leikkona,

Ívar Guðmundsson, útvarpsmaður,

Lára Björg Björnsdóttir, rithöfundur,

Margrét Gauja Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi í leyfi til að sinna ástinni,

Máni Pétursson, útvarpsmaður,

Sindri Sindrason, sjónvarpsstjarna,

Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikkona,

Valdimar Guðmundsson, tónlistarmaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.