Tónlist

Nafnið á laginu varð til á Vogi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Listamannahópurinn Shades of Reykjavík er búinn að gefa út nýtt myndband við lagið Heimdallur en lagið er afurð tveggja meðlima hópsins, K-Kráka og Shaman Shawarma. Einnig kemur listamaðurinn Margeir Dire við sögu.

Að sögn hópsins varð nafnið á laginu til uppi á Vogi.

Shades of Reykjavík spila á Icelandic Airwaves um helgina - á Dolly og Paloma í kvöld, á Frederiksen og í Þjóðleikhúskjallaranum á laugardagskvöldið og á Frederiksen á sunnudagskvöld.

Hópurinn lofar svakalegri sýningu með eldspúandi kínverskum dreka og mikilli nekt svo dæmi séu tekin.

„Við ætlum að gera allt vitlaust á sviðinu! Við lofum rosalegri stemningu,“ segir Freyr Torfason hjá Shades of Reykjavík.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.