Ferðaplön þúsunda farþega gætu farið úr skorðum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 3. nóvember 2014 10:50 WOW air kvartaði í fyrra til Samkeppniseftirlitsins vegna afgreiðslutíma á Keflavíkurflugvelli. Vísir/GVA
EFTA dómstóllinn mun á næstunni kveða upp úrskurð vegna afgreiðslutíma á Keflavíkurflugvelli fyrir flug til Bandaríkjanna. Vefurinn Túristi.is greinir frá því að málið hafi fengið flýtimeðferð hjá dómstólnum. Ef EFTA dómstóllinn kemst að þeirri niðurstöðu að þau úrræði sem Samkeppniseftirlitið hefur vegi þyngra en reglur EES gæti þurft að breyta sumardagskrá WOW air og Icelandair. Bæði flugfélögin eru byrjuð að selja í ferðir fyrir næsta sumar og því ljóst að áætlanir þúsunda ferðalanga gætu farið úr skorðum. Forsaga málsins er sú WOW air kvartaði til Samkeppniseftirlitsins vegna afgreiðslutímans á Keflavíkurflugvelli og beindi máli sínu að Isavia, rekstaraðila flugvallarins. Samkeppniseftirlitið tók kvörtun WOW air til greina og sagði að flugfélagið ætti að fá tvo af afgreiðslutímum Icelandair á flugvellinum. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála felldi þann úrskurð úr gildi og taldi að WOW air hefði ekki átt að kvarta undan Isavia heldur samræmingarstjóra Keflavíkurflugvallar. Vegna þessa ágreinings leitaði Hæstiréttur til EFTA dómstólsins. Í frétt Túrista.is segir að reglur sem gilda um úthlutun afgreiðslutíma á flugvöllum innan EES-svæðisins byggi á reglugerð frá IATA, alþjóðasamtökum flugfélaga. Samtökin hafa ekki viljað tjá sig um deiluna á Íslandi en telja núverandi kerfi þó sanngjarnt.
Mest lesið Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Viðskipti innlent Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Viðskipti innlent Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Fleiri fréttir Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Sjá meira