Tónlist

Frá Airwaves til OMAM

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Kamilla segist spennt fyrir nýja starfinu.
Kamilla segist spennt fyrir nýja starfinu. Vísir/Valli
Kamilla Ingibergsdóttir stendur á tímamótum. Hún hefur nú látið af störfum sem kynningarstjóri Iceland Airwaves og mun á næstunni fara að vinna fyrir hljómsveitina Of Monsters and Men. Hún var þreytt en enn mjög hátt uppi eftir Airwaves-helgina þegar Vísir náði tali af henni.

„Já, ég er búin að vera viðloðandi Iceland Airwaves í 6 ár og þetta var 4. hátíðin sem ég var kynningarstjóri. Þetta er svona súrsætt. Ég mun auðvitað sakna samstarfsfólksins og þess að skipuleggja svona frábæra hátíð eins og Airwaves. En svo er ég líka mjög spennt að fara að vinna fyrir Of Monsters and Men,“ segir Kamilla.

Hún segir að hún sé búin að vinna fyrir hljómsveitina í um hálft ár samhliða starfi sínu fyrir Iceland Airwaves.

„Ég verð mikið með þeim á tónleikaferðalagi. Það er auðvitað þannig þegar að hljómsveit er komin á þennan stað á sínum ferli þá er svo margt sem þarf að huga að. Þetta er bara eins og fyrirtæki. Mér líst alveg rosalega vel á þetta, þetta er ofboðslega spennandi starf og ég get bara ekki beðið eftir að byrja.“

Kamilla fer þó í smá frí áður en hún byrjar í nýja starfinu.

„Já, ég ætla að fara til Egyptalands og vera þar í tvær vikur. Það verður gott að slappa af og borða góðan mat áður en ég byrja svo í nýja starfinu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.