Samkomulag um styrkingu stoða atvinnulífs á Þingeyri og Flateyri Atli Ísleifsson skrifar 28. nóvember 2014 12:16 Um tuttugu ársstörf skapast við vinnslu bolfisks á Flateyri þegar útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Valþjófur tekur við fasteignum og tækjum Arctic Odda á staðnum. Vísir/Anton
Arctic Oddi ehf., Valþjófur ehf. og Vísir hf. hafa gert með sér samkomulag sem þau segja styrkja til langframa stoðir atvinnulífsins á Flateyri og Þingeyri og eyði um leið þeirri óvissu sem verið hefur um atvinnustarfsemi á stöðunum að undanförnu. Samkomulagið felst í því að Arctic Oddi muni flytja starfsemi sína frá Flateyri í húsnæði sem var í eigu Vísis á Þingeyri. „Þar mun fyrirtækið sinna vinnslu og pökkun á eldisfiski og sinna frekari uppbyggingu fyrir fiskeldi sitt. Starfsemin á Þingeyri kallar á um 15 störf í upphafi en þeim mun fjölga í hlutfalli við uppbyggingu fyrirtækisins,“ segir í tilkynningunni. Þá segir að um tuttugu ársstörf skapist við vinnslu bolfisks á Flateyri þegar útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Valþjófur tekur við fasteignum og tækjum Arctic Odda á staðnum. Fyrirtækið muni einbeita sér að fullvinnslu bolfisks, bæði frá Flateyri og Þingeyri. „Auk starfa hjá fyrirtækjunum tveimur má gera ráð fyrir að til verði nokkur fjöldi afleiddra starfa vegna margvíslegrar þjónustu við fyrirtækin. Þau störf leggja grunn að frekari atvinnuuppbyggingu á Vestfjörðum til lengri tíma litið. Með þessu samkomulagi lýkur aðkomu Vísis að útgerð og vinnslu á Þingeyri sem félagið hefur staðið að síðustu 15 árin og traustir aðilar taka við áframhaldandi rekstri og uppbyggingu. Vísir mun stunda fiskvinnslu á Þingeyri fram í mars á næsta ári. Samkomulagið er gert með fyrirvara um samþykki Byggðastofnunar sem gert er ráð fyrir að liggi fyrir um miðjan desember en stuðningur stofnunarinnar er mikilvægur til að skapa grundvöll fyrir starfsemi þar sem nægt hráefni, arðsemi og samkeppnishæfni skipta máli,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Viðskipti innlent „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Samstarf Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Sjá meira