Reitir ljúka 68 milljarða endurfjármögnun Stefán Árni Pálsson skrifar 9. desember 2014 11:51 Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita. vísir/daníel
Reitir fasteignafélag lauk í gær sölu á nýju hlutafé að andvirði 17 milljarða króna en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Salan mun vera liður í endurfjármögnun félagsins, en jafnframt hefur verið samið um 51 milljarðs lánsfjármögnun með sölu skuldabréfa og nýjum bankalánum. Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka var ráðgjafi félagsins við endurfjármögnunina, sem verður að fullu frágengin fyrir lok þessa árs. Reitir eru stærsta fasteignafélag landsins, með eignasafn sem metið er á um 100 milljarða króna. Eftir endurfjármögnun er eiginfjárhlutfall félagsins 38% og lánaþekja 56%. Hvort tveggja er langt innan viðmiða félagsins og lánardrottna. Fram kemur í tilkynningunni að eldri hluthafar félagsins hafi keypt hlutabréf fyrir 5 milljarða, sem þeir áttu forgangsrétt að, en hlutabréf fyrir 12 milljarða voru seld til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, Gildis-lífeyrissjóðs og lífeyrissjóða í eignastýringu hjá Arion banka, sem eignuðust við það 31% hlut í Reitum. Ráðgjafar lífeyrissjóðanna í viðskiptunum voru H.F. Verðbréf og LOGOS lögmannsþjónusta.Arion banki stærsti eigandinn Stærstu einstöku eigendur félagsins eru eftir sem áður Arion banki sem á 31% hlut og Landsbankinn með 22%. Framangreindir lífeyrissjóðir keyptu einnig skuldabréf af Reitum fyrir 25 milljarða króna. Þar er um að ræða nýjan skuldabréfaflokk sem félagið gefur út. Jafnframt sömdu Reitir við Íslandsbanka um lánveitingu til félagsins sem nemur 26 milljörðum króna. Þessi fjármögnun er öll verðtryggð, til 30 ára og á hagstæðari kjörum en fyrri verðtryggð lán félagsins. Önnur vaxtaberandi lán Reita nema tæpum 5 milljörðum króna. Fjármagnskostnaður félagsins verður eftir þetta að meðaltali 4,0% af verðtryggðum lánum. Við endurfjármögnun Reita var horft til þess að gera fjármögnun félagsins sem hagkvæmasta til lengri tíma litið. Því var farin sú leið að veita hliðstæðar eða sameiginlegar tryggingar fyrir nýjum skuldabréfum og lánum, án þess að eignasafn Reita væri brotið niður eða aðgreint til tryggingar á einstökum lánveitingum. Tilhögunin veitir félaginu þann sveigjanleika að þurfa ekki að leita eftir sérstakri heimild lánardrottna fyrir nýrri fjármögnun eða breytingum á eignasafni, svo lengi sem umsamin fjárhagsviðmið standast.Ætla óska eftir skráningu í Kauphöll Íslands Í tilkynningunni segir að stjórn Reita stefni að því að óska eftir skráningu á hlutabréfum Reita og skuldabréfaflokki í Kauphöll Íslands í apríl á næsta ári. Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka mun hafa umsjón með fyrirhugaðri skráningu og í tengslum við hana áformar bankinn að selja hluta af eignarhlut sínum í félaginu. „Viðskiptin, sem hér um ræðir, eru meðal þeirra stærstu að fjárhæð til sem átt hafa sér stað með íslenskt einkafyrirtæki og ein stærstu viðskipti sem lífeyrissjóðir landsins hafa átt hlutdeild að,“ segir Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita. Hann segir einnig að fyrir nýja og eldri hluthafa Reita skipti mestu að félagið eigi verðmætt og vel valið eignasafn. „Reksturinn er stöðugur, sem er til marks um trausta viðskiptavini, og fjárhagsstaðan er gríðarlega sterk, sem gerir félaginu kleift að vera virkari þátttakandi á leigumarkaði með atvinnuhúsnæði. Framtíð Reita er því björt og við erum að búa okkur undir kauphallarskráningu á hlutabréfum og skuldabréfum félagsins næsta vor.“
Mest lesið Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Samstarf Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Fleiri fréttir Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Sjá meira