Lífið

Hrafnhildur hljóp allsnakin í kringum hús þeirra Bubba

Stefán Árni Pálsson skrifar
Veðrið leikur ekki við þau hjónin í Kjósinni í dag.
Veðrið leikur ekki við þau hjónin í Kjósinni í dag. myndir/aðsendar
Bubbi Mortens segir frá því á Facebooksíðu sinni að Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, eiginkona hans, og Ísabella Ósk, dóttir hans, hafi hlaupið allsnaktar í kringum hús þeirra í Kjósinni. Bubbi segir að fegurð Hrafnhildar eigi að geta lægt veðurofsann.

Bubba Morthens býr ásamt Hrafnhildi og fjölskyldu í Kjósinni. Þar er, eins og víðar á landinu, blindbylur.

„Fallegri sjón í óveðri hef ég ekki séð þó skyggnið hefði mátt vera betra,“ segir Bubbi og bætir við broskalli.

„Hríðarkófið bókstaflega gleypti þær þar sem þær hlupu öskrandi og hlæjandi, vaðandi snjó og skafla hringinn í kringum húsið. Lífið er dásamlegt og þær stelpur fengu hetjuorðu.“

Bubbi segir að konan hans sé það vel vaxin að hún geti lægt blindbylinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.