Skapandi leikir og dillandi barnazumba 10. janúar 2014 09:00 Barnagæslan í Reebok Fitness er notaleg og hlýleg og nóg rými fyrir börnin að leika sér og njóta sín. mynd/valli
Það væsir ekki um káta krakka í barnagæslu Reebok Fitness í Holtagörðum. Þar er tekið á móti börnum með hlýju og natni og í boði skapandi leikaðstaða ásamt fjörugum barnatímum í zumba og jóga á laugardögum. Virka morgna er komið sérstaklega til móts við ungbörn. „Kátir krakkar vilja hreyfa sig um leið og foreldrarnir og því bjóðum við upp á hressandi og skemmtilega barna-zumba- og barnajógatíma á laugardögum fyrir börn sem eru hjá okkur í barnagæslu,“ segir Guðríður Erla Torfadóttir, framkvæmdastjóri Reebok Fitness, sem á dögunum opnaði glæsilega leikaðstöðu með barnagæslu. „Við ákváðum að verða við margföldum óskum viðskiptavina okkar um barnagæslu og okkar er ánægjan að passa börnin á meðan foreldrarnir rækta líkama sinn og heilsu,“ segir Guðríður um barnagæsluna sem er opin þrjá virka morgna í viku, síðdegis virka daga og á laugardögum. „Morgungæslan kemur sérstaklega til móts við nýbakaðar mæður í fæðingaroflofi eða heimavinnandi húsmæður sem geta farið í Butt Lift eða Hot Balance-tíma á meðan ungbörn þeirra eru í góðum höndum barnfóstra,“ segir Guðríður.Á virkum morgnum, þrjá daga í viku, er tekið á móti börnum allt niður í þriggja mánaða í barnagæslu Reebok Fitness.mynd/valliBarnapössun Reebok Fitness kostar aðeins 1.500 krónur á mánuði. Eitt verð greiðist fyrir alla fjölskyldumeðlimi og gildir einu hvort barnið sé eitt fleiri. „Foreldrar og forráðamenn barna bóka þau fyrirfram í barnagæsluna á netinu. Með því fáum við yfirsýn yfir hversu mörg börn koma hverju sinni og foreldrar koma koma barni sínu örugglega í barnagæslu,“ útskýrir Guðríður í hlýlegri barnaaðstöðu Reebok Fitness. „Við leggjum áherslu á skapandi leiki og samveru þar sem börnin geta spriklað um eða dundað sér á dýnum, krítað á spegla og töflur, kubbað, púslað eða leikið sér með spennandi leikföng og að sjálfsögðu eru yndislegar barnfóstrur börnunum til halds og trausts.“ Aldurstakmark í barnagæslu Reebok Fitness er þriggja mánaða á morgnana og tveggja ára síðdegis. „Börn sem komið hafa til okkar í gæslu eru himinsæl með aðstöðuna og það er spennandi að gefa þeim kost á að dilla sér í barna-zumba og fara í barnajóga hjá leikskólakennaranum Unnari Geir Unnarssyni. Barnatímar sem þessir eru nýjung á íslenskum líkamsræktarstöðvum og falla vel í kramið. Foreldrar bóka börn sín í tímana á netinu, eins og tíðkast með alla hópatíma í Reebok Fitness og við erum með fleiri skemmtileg útspil í farvatninu fyrir hressa krakka í barnagæslunni.“ Barnagæsla Reebok Fitness er opin sem hér segir: mánudaga, miðvikudaga og föstudaga frá 8.45-13.15 (aldurstakmark 3ja mánaða) og virka daga frá 16.30-19.30 (aldurstakmark 2 ára). Á laugardögum er opið frá klukkan 9-13 aldurstakmark (aldurstakmark 2 ára). Sjá nánar á www.reebokfitness.is
Mest lesið Questhjónin: „Sterkbyggðustu húsin voru barirnir og vændishúsin“ Atvinnulíf „Minnstu loðnuvertíð sögunnar að ljúka“ Viðskipti innlent Situr uppi með „fýlusvipinn“ þrátt fyrir að hafa borgað fyrir aðgerð Neytendur Svo fölsk að móðir hennar leitaði ráða hjá kórstjóranum Atvinnulíf Vonar að Icelandair sjái sóma sinn í að bæta fólki tjónið Neytendur Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Viðskipti innlent Fleiri hlutastörf: „Viltu vera memm?“ Atvinnulíf Gervigreindin: Píparinn öruggur en læknirinn ekki? Atvinnulíf Vetrarferð á verðlaunuðum rafbíl Samstarf Heimar kaupa umdeild hús á rúma sex milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vetrarferð á verðlaunuðum rafbíl Iðnaðarhurðir sem henta íslenskum aðstæðum Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Slippfélagið eflir þjónustu með gervigreind BYKO með ánægðustu viðskiptavinina áttunda árið í röð Greiðsluáskorun Rafbílaeigendur hljóta að hafa stáltaugar Bóndi í Borgarfirði keyrði Skoda-bíl yfir milljón kílómetra Góð kjör á afmælissýningu Toyota Sjá meira