Skrímslin orðin tíu ára Halla Þórlaug Óskarsdóttir skrifar 8. október 2014 13:00 Skrímslakisi
Bækur: Skrímslakisi Áslaug Jónsdóttir, Kalle Güettler og Rakel Helmsdal Mál og menning Þótt ótrúlegt megi virðast eru tíu ár síðan fyrsta skrímslabókin, Nei! sagði litla skrímslið, kom út, eftir Áslaugu Jónsdóttur, Kalle Güettler og Rakel Helmsdal. Skrímslin voru ekki lengi að festa sig í sessi hjá ungum lesendum og þótt elstu aðdáendurnir séu líklega vaxnir upp úr bókaflokknum hlýnar þeim eflaust um hjartarætur að sjá að þessir gömlu vinir þeirra eru enn að bardúsa ýmislegt. Á dögunum kom nefnilega út áttunda bókin um viðkvæmu skrímslin tvö. Bókin ber titilinn Skrímslakisi en þar hefur litla skrímslið eignast kettling og hann tekur fullmikið af athygli eigandans – eða það finnst stóra skrímslinu í það minnsta. Vinirnir geta auk þess ekki lengur klifrað í trjám, því kisi er svo lítill, og ekki farið að synda, því kisi er hræddur við vatnið, og þar fram eftir götunum. Lesandinn veltir kannski fyrir sér hvort stóra skrímslið sé í raun afbrýðisamt út í litla skrímslið sem á svona sætan kettling, eða sjálfan kettlinginn sem fær alla athyglina frá litla skrímslinu, bara með því að vera til. Kannski veit stóra skrímslið ekki einu sinni svarið sjálft þegar það tekur málin í sínar hendur. Það sem einkennir skrímslabækurnar er að sagan er sögð á mörgum plönum, myndirnar standa einar og sér, sem og textinn, en á blaðsíðum bókarinnar talar textinn við myndirnar og segir enn aðra sögu. Til dæmis þegar stóra skrímslið tekur málin í sínar hendur er það ekki sagt berum orðum heldur gefið í skyn með samtali mynda og texta. Þannig er lagt mikið traust á lesandann og ánægjan af lestrinum verður enn meiri og jafnframt skapast tilefni til umræðna milli foreldra og barna. Textinn er broslegur, persónur skrautlegar og myndirnar afar lifandi. Form bókarinnar er öðruvísi og aðlaðandi. Allt virðist vera útpælt, enda hafa höfundar nú tíu ára reynslu af samvinnu við þessi skrautlegu skrímsli.Niðurstaða: Afar vönduð og lifandi barnabók á mörgum plönum sem býður upp á að vera lesin margsinnis og alltaf hægt að finna eitthvað nýtt til að tala um.
Gagnrýni Mest lesið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Áskorun Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Lífið Stjörnufans í eins árs afmæli Lífið Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Lífið Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Lífið Datt af sviðinu og beint í skurð Tónlist Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Lífið „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Lífið Fleiri fréttir Suddalega slappt Stjörnustríðsslor Plastgangsterar: Þegar Herra Hnetusmjör týndist í Laugardalshöllinni Lítið kjöt á beinum rándýrsins Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Sjá meira