Hvað á að elda í kvöld? Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 22. október 2014 00:00 Grjónagrautur, kjötbollur, lasanja, grjónagrautur, kjötbollur, lasanja, lasanja, kjötbollur, grjónagrautur. Örbylgjuréttir fyrir sjálfstæða Íslendinga hafa verið uppistaðan í fæði fjölskyldunnar undanfarið. Þá höfum við „kíkt við“ á kvöldmatartíma hjá tengdó nokkuð oft. Og pantað pitsur. Margar, margar pitsur. Við höfum líka náð að fullkomna tæknina við að harðsjóða egg í hraðsuðukatlinum og ristað brauð er sannarlega tekið gilt sem „heit máltíð“. Instant-núðlur með smjöri og tómatsósu hafa þó ekki náð vinsældum sem staðgengill spagettís. Veit ekki af hverju. Sjálfsagterum við langt frá því að standa við 248 krónurnar á manninn en það verður bara að hafa það. Ástæðaþessa matseðils er sú að það standa yfir framkvæmdir í eldhúsinu heima. Þær hófust fyrir meira en mánuði og áttu að standa stutt. Í bjartsýniskasti aftengdum við því öll tæki til eldunar um leið og einungis fyrir tóma leti að við aftengdum ekki vatn og vask líka. Við höfum því getað þvegið upp og hellt upp á kaffi. Og soðið egg í hraðsuðukatlinum. Skyndiákvarðanirog ófyrirséðar uppákomur hafa einkennt alla þessa framkvæmd. Bara rétt áðan hringdi bóndinn og spurði hvort lengdin ætti að vera 95 eða 92? Hann var staddur í plötusöguninni og ég svona hálfpartinn sló á 92. Merkilegt nokk hafði hann vit fyrir okkur báðum og ákvað að við skyldum mæla betur í kvöld og láta saga á morgun. Þrisvar höfum við sett upp sömu skápana og í hvert skipti og þeir eru komnir á sinn stað höfum við rekið augun í eitthvað sem við hefðum átt að klára, áður en við festum þá upp. Skrúfa niður og skrúfa upp, aftur og aftur. Viðnáðum þó merkum áfanga í gærkvöldi. Bakarofninn fór á sinn stað og honum er meira að segja hægt að stinga í samband. Við rafmagn. Í kvöld stendur því mikið til, fyrsta heimaeldaða alvöru máltíð fjölskyldunnar í langan tíma. Hvað eigum við að hafa í matinn? Tja, þú segir nokkuð. Pitsu? Lasanja? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ragnheiður Tryggvadóttir Mest lesið Spyrjið ykkur: Fyrir hvern vinnur íslenska krónan? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson Skoðun Dulinn kostnaður við kreditkortið þitt Dagur B. Eggertsson Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson Skoðun