Ævintýrin gerast enn á Skuggaskeri Halla Þórlaug Óskarsdóttir skrifar 24. október 2014 12:00 Draugagangur á Skuggaskeri
Bækur: Draugagangur á Skuggaskeri Sigrún Eldjárn Mál og menning Það verður að viðurkennast að undirrituð var afar spennt þegar hún sá að Sigrún Eldjárn hafði sent frá sér framhald sögunnar um Strokubörnin á Skuggaskeri, sem kom út í fyrra. Sú bók sagði frá börnum sem flúðu heimabæi sína vegna stríðsátaka og settust að á Skuggaskeri – hálfgerðri eyðieyju, skammt frá. Þar fjallaði höfundur um stríð og sýnir hversu fáránlegt það er, með því að setja það í samhengi sem virðist nærtækara fyrir íslensk börn að skilja heldur en fréttir langt utan úr heimi. Nýja bókin, Draugagangur á Skuggaskeri, segir sögu þessara sömu barna sem enn eru stödd á Skuggaskeri, því þau neituðu að fara heim með foreldrum sínum í lok síðustu bókar. Nú hefur ein amma bæst í hópinn og reyndar fleiri til, en það vita börnin ekki strax. Í þessari bók reyna krakkarnir á eigin skinni hve auðvelt er að falla í þá gryfju að gruna saklausa um græsku. Sagan er sögð út frá mörgum sjónarhornum, raunar fá lesendur að skyggnast inn í höfuð allra persónanna einhvern tímann. Hins vegar er sögunni skipt í tvo þætti sem fléttast saman og annar þátturinn er sjónarhorn „heimamanna“ en hinn aðkomumanna, sem hugsanlega hafa illt í hyggju. Höfundur greinir milli þessara kafla með litaskiptingu, en þeir eru settir fram með mismunandi lituðu letri. Það kemur vel út og einfaldar lesturinn. Litmyndir Sigrúnar eru einnig góð viðbót við textann og lífga upp á heildarmyndina. Þar er ekkert til sparað, því næstum hver einasta opna hefur að geyma sprelllifandi og fallega vatnslitaða teikningu. Stundum fleiri en eina. Fléttan er vel heppnuð og frásögnin stútfull af skemmtilegum persónum og fyndnum atvikum. Svo er hún líka spennandi. Persónurnar eru vel skapaðar og höfundur meðvitaður um að enginn er bara vondur eða bara góður. Höfundur skrifar söguna af virðingu fyrir lesendum sínum, börnunum. Niðurstaða: Virkilega vönduð og skemmtileg bók, sem bæði börn og fullorðnir ættu að hafa gaman af. Litmyndir og litaður texti lífga upp á lestrarupplifunina.
Gagnrýni Mest lesið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Áskorun Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Lífið Laufey fær eigin God of War leik Leikjavísir Datt af sviðinu og beint í skurð Tónlist Stjörnufans í eins árs afmæli Lífið Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Lífið Peabo Bryson er látinn Tónlist Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Lífið Fleiri fréttir Suddalega slappt Stjörnustríðsslor Plastgangsterar: Þegar Herra Hnetusmjör týndist í Laugardalshöllinni Lítið kjöt á beinum rándýrsins Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Sjá meira