:Þá nýfæddur Jesús í jötunni lá
á jólunum fyrstu var dýrðlegt að sjá.
Þá sveimuðu englar frá himninum hans
því hann var nú fæddur í líkingu manns
Þeir sungu "hallelúja" með hátíðarbrag
"Nú hlotnast guðsbörnum friður í dag"
Og fagnandi hirðarnir fengu að sjá
hvar frelsarinn okkar í jötunni lá.
Ég bið þig, ó, Drottinn, að dvelja mér hjá
að dýrðina þína ég fái að sjá.
Ó, blessaðu, Jesú, öll börnin þín hér,
að búa þau fái á himnunum með þér
W.J. Kirkpatrick/Guðmundur Óli Ólafsson
Jól