Táningabók
Sigurður Pálsson
JPV
Endurminningabækur Sigurðar Pálssonar hafa hlotið mikið lof síðustu ár og það er ljóst að það mun ekki breytast með þessari þriðju bók. Táningabók fjallar, eins og nafnið gefur til kynna, um táningsár skáldsins. Hér lýsir Sigurður því óstöðuga og leitandi tímabili þegar hann er mitt á milli þess að vera barn og fullorðinn.
Aðferð Sigurðar í þessari bók er sams konar og í Minnisbók (2007) og Bernskubók (2011). Frásögnin er fjölbreytt, þar skiptast á atvik í þroskasögu Sigurðar Pálssonar, stuttar skondnar sögur af þekktum mönnum, lýsing á menningarlífi þessa tíma, hugleiðingar um skáldskap og það að verða skáld og pælingar um eðli minnisins og mannlega tilveru. Stíllinn er stundum ljóðrænn, stundum íhugull, stundum greinandi og stundum er um hreinræktaðan skemmtistíl að ræða. Inn á milli er svo skotið ljóðum sem tengjast umfjöllunarefninu. Þrátt fyrir þetta er bókin alls ekki sundurlaus en það sem heldur henni saman er fyrst og fremst sterk höfundarrödd Sigurðar. Auk þess er frásögnin nokkurn veginn í tímaröð, þótt Sigurður skjóti stundum inn bútum þar sem farið er fram eða til baka í tíma, og því verður þróun aðalpersónunnar til að halda atriðunum saman.
Í hinum bókunum tveimur var sögusviðið annars vegar sveitin og hins vegar Parísarborg. Í þessari bók er það Reykjavík. Borgin er í stóru hlutverki í frásögn Sigurðar enda er ýmislegt sameiginlegt á milli táningsins og hennar.

Viðhorf hins fullorðna Sigurðar til sjálfs sín á táningsaldri einkennast jöfnum höndum af hlýju og umburðarlyndi og sjálfsíróníu. Sigurður sýnir vel hvernig hann sjálfur (og unglingar almennt) er undarleg blanda af sjálfsöryggi og óöryggi. Sú tilfinning að maður sé að gera allt miklu betur en áður hafi verið gert, í bland við djúpstæða tilfinningu fyrir eigin takmörkunum. Það hvernig þörfin til að finna sjálfan sig og skapa sjálfan sig tekst á í lífi táningsins. Þetta gerir Sigurður þannig að lesandi fær hlutdeild í væntumþykju höfundar gagnvart hinum unga Sigurði en getur á sama tíma hlegið að honum þannig að tárin trilla, en lýsingarnar á menningarlegum uppátækjum í menntaskóla eru með því fyndnasta sem ég hef lesið lengi.
Niðurstaða: Einstaklega skemmtileg og falleg lýsing á táningsárum manns og borgar.