Spáir að stýrivextir verði lækkaðir í tvígang 4. desember 2014 07:30 Stýrivextir eru nú 5,75 prósent en í byrjun nóvember voru þeir lækkaðir um 0,25 prósentustig. Vísir/GVA
Greining Íslandsbanka spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að lækka stýrivexti um 0,25 prósentustig á næsta vaxtaákvörðunarfundi sem verður 10. desember næstkomandi. Einnig spáir greiningardeildin að vextirnir verði aftur lækkaðir á vaxtaákvörðunarfundi bankans þann 4. febrúar og standi þá í 5,25 prósentum. „Rökin fyrir lækkuninni verða að okkar mati þau að raunvextir bankans hafi hækkað meira undanfarið en bankinn gerði ráð fyrir og aðhald peningastefnunnar aukist en ekki minnkað eftir vaxtalækkunina í nóvember,“ segir í nýrri stýrivaxtaspá deildarinnar sem kynnt var í gær. Þar er einnig tekið fram að hækkun raunstýrivaxta hafi undanfarið verið umfram það sem staða hagsveiflunnar og nærhorfur gefi tilefni til. Einnig hafi verðbólguhorfur til skemmri tíma batnað talsvert miðað við það sem gert sé ráð fyrir í verðbólguspá Seðlabankans. „Þá hafa verðbólguvæntingar lækkað enn frekar frá síðasta vaxtaákvörðunarfundi, og eru nú nálægt verðbólgumarkmiðinu, sérstaklega horft til skemmri tíma.“ Starfsmenn greiningardeildarinnar búast við að vaxtahækkunarferli hefjist á ný undir lok næsta árs og að stýrivextir Seðlabankans verði því hækkaðir um 0,25 prósentustig í nóvember 2015.
Mest lesið Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Greiðsluáskorun Samstarf Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Viðskipti innlent „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Viðskipti innlent Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Fleiri fréttir Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Sjá meira