Hagstofan stendur við tölur um minni hagvöxt Haraldur Guðmundsson skrifar 11. desember 2014 07:00 Seðlabankastjóri var klæddur í jólapeysu þegar hann kynnti ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að lækka stýrivexti um 0,5 prósentustig í gær. Vísir/Ernir „
Þetta er bara hluti af þessari reglubundnu vinnu okkar og það er ekkert í þessum niðurstöðum sem við höfum séð ástæðu til að breyta,“ segir Rósmundur Guðnason, sviðsstjóri efnahagssviðs Hagstofu Íslands, spurður hvort stofnunin ætli að endurskoða hagtölur sem birtar voru í síðustu viku og sýndu 0,5 prósenta hagvöxt á fyrstu níu mánuðum ársins. Már Guðmundsson seðlabankastjóri sagði tölurnar vera „verulega á skjön“ við aðrar vísbendingar um þróun eftirspurnar á vaxtaákvörðunarfundi bankans í gær. Tölurnar birtust í Hagtíðindum þann 5. desember og komu mörgum á óvart þar sem þær sýna hægan vöxt einkaneyslu. Það gengur þvert á fyrri spár Seðlabankans, Hagstofunnar og greiningardeilda bankanna um að hagvöxtur hér verði um þrjú prósent á árinu. „Við teljum að það sé hugsanlegt að hagvöxtur verði eitthvað lægri og hafi verið lægri á þessum seinnihluta ársins en við vorum að spá og kannski smitar það yfir á næsta ár. En við teljum fulla ástæðu til að túlka þessar tölur með mikilli varúð. Það eru ýmsar vísbendingar um að eitthvað hafi farið úrskeiðis við þessa mælingu og þess vegna er ekki alveg hægt að taka hana bókstaflega,“ sagði Már á fundinum í gær. Seðlabankastjóri benti á að samkvæmt tölunum hefur nafnvirði landsframleiðslu aukist um 5,8 prósent frá þriðja ársfjórðungi í fyrra en samdráttur í raungildi landsframleiðslunnar verið um 0,2 prósent. „Sem þýðir að verðbólgan á þennan mælikvarða er sex prósent. Þá ættum við auðvitað ekki að vera að lækka stýrivexti,“ sagði Már og hélt áfram: „Og síðan ef við notum sömu skoðun á einkaneysluna og fáum út verðvísitölu einkaneyslu þá er hún alveg út úr korti miðað við vísitölu neysluverðs eins og hún er mæld mánaðarlega af Hagstofunni. Þannig að við teljum ástæðu til að skoða þetta betur og sjá hvað endurskoðanir leiða í ljós,“ sagði Már. Á fundinum benti Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri einnig á að innflutningur hér hafi aukist um fjórtán til fimmtán prósent milli ára. „Það bendir þvert á móti til þess að það sé verulegur vöxtur í innlendri eftirspurn, annars væri þessi innflutningur ekki að aukast með þessum hætti,“ sagði Arnór. Rósmundur segir það geta verið að hluti af tölum um innflutning á þriðja ársfjórðungi eigi ekki eftir að skila sér fyrr en á fjórða ársfjórðungi. „Þá er niðurstaðan ekki alveg ljós fyrr en eftir árið. Við könnum hvað er til í birgðum hjá framleiðslufyrirtækjunum en ekki hjá verslunarfyrirtækjum, enn sem komið er, og það hefði hugsanlega getað skýrt eitthvað af þessu en enn sem komið er eru áhrif þess ekki ljós,“ segir Rósmundur, „Við teljum hins vegar að það sé enginn munur á þessu og öðrum áætlunum sem við höfum gert. Það virðist vera meiri samdráttur á þriðja ársfjórðungi. En svo verður spennandi að sjá hvernig jólin koma út en þá ætti einkaneyslan að aukast. Þessar tölur verða svo endurskoðaðar þegar við birtum fyrstu niðurstöður fyrir árið.“
Mest lesið Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Greiðsluáskorun Samstarf Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Viðskipti innlent „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Viðskipti innlent Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Fleiri fréttir Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Sjá meira