Spennandi morgunverðarfundur 24. febrúar 2015 08:30 Framsögumaður er Kristján Hólmar Birgisson, hugbúnaðarsérfræðingur hjá RB. MYND/GVA
RB (Reiknistofa bankanna) heldur áhugaverðan morgunverðarfund um AngularJS næsta fimmtudag í húsakynnum sínum við Höfðatorg. Fundurinn er opinn öllum en uppbókað er á hann og greinilegt að mikill áhugi er fyrir þessu umfjöllunarefni. Framsögumaður er Kristján Hólmar Birgisson, hugbúnaðarsérfræðingur hjá RB. Hann segir AngularJS vera javascript framework sem auðveldi forritun á framendalausnum og er um svokallaða „open source project“ að ræða sem viðhaldið er af tæknirisanum Google og vefsamfélaginu. „AngularJS hefur á skömmum tíma náð mikilli útbreiðslu um allan heim og er að verða eitt vinsælasta tólið til að búa til falleg og notendavæn viðmót á vefsíðum.“Kristján Hólmar mun á fundinum kynna betur hvað AngularJS er fyrir fundargestum og greina auk þess frá því hvers vegna RB valdi þá lausn. „Ég mun líka fjalla um samspil AngularJS og legacy kóða, fara í uppbyggingu RB Angular viðmóts og ræða sniðmát fyrir þróunartól. Að lokum mun ég fjalla lítillega um verklag RB við þróun á viðmótum.“ Að sögn Kristjáns er fundurinn helst ætlaður því tæknifólki í hugbúnaðargeiranum sem vinnur við framendaforritun og lausnum fyrir vefi. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 26. febrúar í höfuðstöðvum RB í Höfðatorgi, Katrínartúni 2, á 4. hæð, milli klukkan 8.30 og 10.00. Búið er að loka fyrir skráningu þar sem salurinn tekur ekki við fleiri gestum. Hægt verður að nálgast myndbandsupptöku af fundinum á vefsíðu RB og á Youtube rás RB að fundi loknum.
Mest lesið Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Neytendur Síðasti dropinn á sögulegri stöð Viðskipti innlent Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Samstarf Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Viðskipti innlent Ætlar ekki að deyja í smán og gefur frá sér auðæfin Viðskipti erlent Ríkið eignast hlut í Norwegian Viðskipti erlent Svandís tekur við Fastus lausnum Viðskipti innlent Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Viðskipti innlent Hrósæfingar fyrir vinnustaði, gryfjur og góð ráð Atvinnulíf Fleiri fréttir Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira
Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Viðskipti innlent
Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Viðskipti innlent