Bílar

Athyglipróf Skoda

Finnur Thorlacius skrifar
Skoda kynnir nú nýja gerð Fabia bíls síns og gerir það á óvenjulegan hátt í þessu meðfylgjandi myndskeiði. Nýja bílnum er komið fyrir á fremur fáfarinni götu í Bretlandi í þeim tilgangi að fylgjast með því hvort þessi nýi bíll veki áhuga vegfarenda.

Á meðan fylgst er með áhuga vegfarenda breytist götumyndin hægt og rólega, líklega án þess að flestir áhorfendur taki mikið eftir því. Forvitnilegt er að sjá hve mikið hægt er að blekkja augað á meðan þessu stendur, því á endanum er hún gerbreytt.

Athygli flestra er væntanlega mest á bílnum og því veita því fæstir athygli hve umhverfið breytist mikið á meðan. Sjón er sögu ríkari.






×