Lífið

„Í afneitun um hvað þetta er glatað ástand“

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Lífið á Vísi fór á stúfana og grennslaðist fyrir um hvað fólk hefði fyrir stafni í óveðrinu.
Lífið á Vísi fór á stúfana og grennslaðist fyrir um hvað fólk hefði fyrir stafni í óveðrinu. Vísir
Veðrið hefur ekki beint leikið við landsmenn nú um helgina, en Veðurstofan hefur gefið út aðra stormviðvörun þar sem búist er við meira en 20 metrum á sekúndu sunnanlands síðdegisog víðar um land í nótt og fram á mánudagsmorgun.

Lífið á Vísi fór á stúfana og grennslaðist fyrir um hvað fólk hefði fyrir stafni í óveðrinu.



Árni VilhjálmssonVÍSIR/ANDRI MARINÓ
Í afneitun

Árni Vilhjálmsson
úr hljómsveitinni FM Belfast sagðist hanga mikið á Twitter.

Ég reyni að tala sem minnst um veðrið og fer í afneitun um hvað þetta er glatað ástand.

Auk þess sem ég tékka reglulega á því hvort veðrið sé nokkuð of slæmt fyrir pizzusendla Domino's."

Vísir/GVA
Þægileg innivinna

Valgerður Bjarnadóttir, alþingiskona, segist heppin að hafa innivinnu í svona veðri.

„Ég er nú svo heppin að vera í þægilegri innivinnu, svo veðrið hefur ekki mikil áhrif á það,“ segir þingkonan.

„Ef veðrið verður mjög slæmt finnst mér nú samt best og öruggast að breiða sængina upp yfir haus."


Veðrið er afstætt

Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, rithöfundur og fyrirlesari, lét sig dreyma um sólarstrendur.

„Ég bölvaði veðrinu og lét mig dreyma svolítið um Tenerife, viðurkenni ég. Fyrirlestrarnir mínir Ber það sem eftir er - um sexting, hefndarklám og netið voru engu að síður vel sóttir, blessunarlega, og er ég þakklát foreldrum sem létu veðurguðina ekki aftra sér.“

Í gær var jógatíminn minn felldur niður vegna veðurs, svo ég skellti mér í sund í staðinn. Þar var fullt út úr dyrum og glaðlegur starfsmaður tjáði mér að það stafaði af „góða veðrinu.“

Lærdómurinn sem draga má af þessu er hvað veðrið er innilega afstætt á Íslandi."
Þórir Sæmundsson
Byggði virki og drakk kakó

Þórir Sæmundsson, leikari reyndi fyrir sér á Twitter.

„Ég byggði virki úr koddum, sængum og dýnum. Drakk kakó, horfði á Toy Story og hlustaði á fréttir.

Svo las ég Twitter, horfði út um gluggann og reyndi að láta mér detta í hug fyndin tíst með kassmerkinu #lægðin. Gekk miðlungs vel."

Steinunn til hægri, ásamt Sölku Sól.
Kökubakstur og mótmæli

Steinunn Jónsdóttir, meðlimur hljómsveitarinnar Amaba Dama fór að mótmæla.

„Í gær var ég heima að kubba og baka köku.Í dag fagnaði ég lægðarleysinu og fór í sund með soninn og að mótmæla á Austurvelli."

Steinunn var ekki sú eina sem mætti á Austurvöll en talið er að nokkur þúsund manns hafi mótmælt eins og sjá má hér.



Saga Garðarsdóttir
Saga Garðarsdóttir, leikkona, byrjaði á dagbók.

„Ég íhugaði stöðu mína í samfélaginu og byrjaði að skifa dagbók sem ég hætti daginn eftir. Kannski skrifa ég bara í hana þegar vindstigin fara yfir 15.

Það er allavega bæði ljóðrænna og léttara heldur en að skrifa á hverjum degi. S
vo fór ég í barnaafmæli og rústaði einum sex ára í kókosbollukeppni og fékk í magann. Líður samt eins og sigurvegara."







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.