Höldur sýnir B-Class og Sorento Finnur Thorlacius skrifar 16. apríl 2015 11:11 Mercedes Benz B-Class.
Höldur á Akureyri mun vera með sérstaka sýningu á nýjum Mercedes-Benz B-Class og Kia Sorento á Akureyri nk. laugardag kl. 12-16. Þá mun K. Steinarsson í Reykjanesbæ einnig sýna Kia Sorento jeppann sama dag kl. 12-17. Mercedes Benz B-Class hefur fengið nýtt og ferskara útlit sem er með sportlegum og áberandi línum. Innanrýmið er nútímalegt og frísklegt með hágæða búnaði og efnisvali. Þessi vinsæli bíll fæst nú sjálfskiptur með hinu fullkomna 4MATIC aldrifskerfi frá Mercedes-Benz sem gerir hann enn meira spennandi við íslenskar aðstæður. B-Class er í boði með aflmiklum en sparneytnum bensín- og dísilvélum og fæst nú einnig aftur í metanútfærslu. Kia Sorento hefur nú fengið nýtt og staumlínulagaðra útlit og er enn betur búinn en forverinn. Nýr Sorento er einnig stærri og rúmbetri en áður. Jeppinn er með kraftalegan framenda með stærra grilli og lengri vélarhlíf. Afturendinn er með nýtískulegum LED ljósum og útlitið ber það með sér að hafa verið endurhannað frá grunni. Þakið er lægra en axlarlínan hærri sem gefur honum enn sportlegra útlit. Ný kynslóð Kia Sorento er boðin með öflugri en jafnframt sparneytinni 2,2 lítra díselvél sem skilar 200 hestöflum.Kia Sorento.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent