Bílar

Mengun nýrra bíla minnkaði um 2,6% í fyrra

Finnur Thorlacius skrifar
Þétt bílaumferð í Þýskalandi.
Þétt bílaumferð í Þýskalandi.
Þeir nýju bílar sem seldir voru í fyrra í Evrópu menguðu að meðaltali 123,4 g/km af CO2, en 126,7 g/km árið 2013. Það þýðir að mengunin minnkaði um 2,6% á einu ári.

Langtímamarkmið Evrópusambandsins um mengun fyrir árið í ár er 130 g/km, svo bílaframleiðendur hafa náð því og gott betur, en árið 2013 fór meðaltalssmengunin fyrst undir þetta markmið.

Markmið Evrópusambandsins fyrir árið 2021 er 95 g/km og þykir mörgum það bratt markmið, en bílaframleiðendur hafa náð öllum settum markmiðum yfirvalda fram að þessu.

Nýir bílar menga mismikið og voru mengunarfríustu bílarnir í fyrra keyptir í löndum Hollands, Grikklands og Portúgal í fyrra og bendir það til þess að smekkur fyrir litla bíla sé þar mikill. Hinsvegar voru þeir mest spýjandi keyptir í löndum Eistlands, Lettlands og Búlgaríu.

Í baráttunni við mengun er þó ekki allt unnið með meðaltalsminnkun mengunar hvers nýs bíls, því hafa verður í huga að sala nýrra bíla jókst um 6% í Evrópu í fyrra og því vegur aukinn fjöldi bíla upp lækkaða meðalmengun þeirra. 






×