Lífið

Beyoncé gæti horfið af Tidal

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Tidal gengur erfiðlega að ná samningum við Sony, sem á streymisréttinn af tónlist tónlistarkonunnar sem er einn eigenda fyrirtækisins.
Tidal gengur erfiðlega að ná samningum við Sony, sem á streymisréttinn af tónlist tónlistarkonunnar sem er einn eigenda fyrirtækisins. Vísir/AFP
Sú sérkennilega staða gæti komið upp að fjarlægja þurfi tónlist Beynocé af streymisþjónustunni Tidal sem er meðal annars í eigi hennar sjálfrar og eiginmanns síns, Jay Z. Tidal hefur ekki náð samningum við Sony, sem gefur út tónlist Beyoncé.

Sjá einnig: Jay Z ætlar að steypa Spotify af stóli

Náist samningar ekki eru líkur á að Sony fari fram á að tónlist stjörnunnar verði fjarlægð af Tidal. Fyrirtækið hefur farið fram með svipaða kröfu á hendur Soundcloud, eftir að ekki tókst að semja um greiðslur fyrir streymið.

Bloomberg greinir frá því að Tidal hafi áður gert sambærilega samninga við útgáfurisana Universal og Warner en félagið á í lausafjárvanda eftir að fjárfestingasamningur við símafélagið Sprint gekk ekki upp. Er því útlit fyrir að erfiðlega gangi að semja um greiðslur sem Tidal ræður við og Sony samþykkir.

Sjá einnig: Samanburður á Tidal og Spotify

Forsvarsmenn Tidal fullyrða að 900 þúsund áskrifendur séu að þjónustu fyrirtækisins en háværar efasemdaraddir eru uppi um að sú tala endurspegli í raun þann fjölda sem greiðir fyrir þjónustuna; boðið var upp á fríáskrift til að kynna þjónustuna sem senn fer að renna út.

Sony á einnig streymisréttinn að tónlist Daft Punk, Alicia Keys og Usher, sem eru meðal listamanna sem bjóða tónlist sína í gegnum Tidal.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.