Bónus skór hættir Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 2. júní 2015 11:30 Bónus skór hefur verið talsvert oft lokuð síðastliðin ár. Á myndinni er Sonja og vinkona hennar Rut Rúnarsdóttir. Mynd/Sonja
Verslunin Bónus skór á Hverfisgötu er að hætta. Til stendur að hafa rýmingarsölu nú um helgina og með tíð og tíma opnar í rýminu kaffihús. „Já þetta eru aldeilis tíðindi í miðbænum. Bónus skór loks að loka. Við ætlum að opna búðina um helgina og losa þennan lager,“ segir Sonja Magnúsdóttir en hún er sú sem leigir nú húsnæðið og hyggst opna kaffihúsið Vínil. Bónus skór hefur verið í rýminu síðan um aldamótin en var annars staðar á Hverfisgötu í um áratug áður. Hún hefur því sett svip sinn á Hverfisgötuna í um þrjátíu ár. „Ég er semsagt búin að leigja rýmið af eldri herramanninum sem á það og hefur rekið skóbúðina í ég veit ekki hvað mörg ár,“ útskýrir Sonja. En aðdáendur verslunarinnar hafa tekið eftir því að síðastliðin ár hefur hún sjaldan verið opin. Sonja segir það vera vegna þess að eigandi búðarinnar var í raun kona mannsins en hún féll frá fyrir nokkrum árum.Sonja Jónsdóttir hefur sjálf búið á Hverfisgötu í fjölda ára.Vísir/Aðsend„Underground“ kaffihús málið Sonja keypti lagerinn allan upp en um þrjú þúsund skó er að ræða af öllum stærðum og gerðum; á börn, konur og karla. Það er greinilega mikill áhugi á því að versla hjá búðinni. „Ég var með búðina opna í gær, var aðeins að taka til fyrir helgina og það komu fullt af kúnnum. Ég náði að selja nokkur skópör.“ Kaffihúsið Vínil mun leggja áherslu á að þjónusta íbúa miðbæjarins en síður ferðamannastrauminn. „Miðbærinn er orðinn svo eyðilagður af öllum þessum túristabúðum. Mig langar að stýra meira inn á lókalinn. Vera aðeins underground,“ segir Sonja og hlær. „Mér finnst það meira kúl.“ Rýmingarsalan verður næstu helgi eins og áður sagði en opið verður föstudag til sunnudags frá 12-18. Búðin stendur við Hverfisgötu 76.
Mest lesið Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Viðskipti erlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Viðskipti innlent Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Viðskipti innlent Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Sjá meira