„Verið að blekkja neytandann“ Birgir Olgeirsson skrifar 18. júní 2015 11:23 Rakel Garðarsdóttir er forsvarsmaður samtakanna Vakandi en hún segir Freyju varpa ábyrgð um umhverfisvernd yfir á neytendur með þessum umbúðum. „
Fyrir það fyrsta er verið að blekkja neytandann,“ segir Rakel Garðarsdóttir, forsvarsmaður samtakanna Vakandi, um kassa af Smádraumi frá Freyju. Mynd af kassanum var birt á Facebook og hefur verið dreift víða á samfélagsmiðlunum. Finnst mörgum ansi mikið magn af umbúðum fara undir þessa tólf bita sem eru í kassanum. Vakandi eru samtök sem vilja auka vitundarvakningu um sóun matvæla en Rakel segir verið sé að brjóta á neytandanum og umhverfinu í þessu tilviki.Ábyrgð varpað á neytendur „Neytandinn sér ekki inn í kassann þegar hann er út í búð og heldur kannski að hann sé fullur,“ segir Rakel og bendir á að Freyja noti of mikið af pappír og plasti í þessu tilviki. „Og varpar þannig allri ábyrgð á neytandann. Þetta er allt of mikið af umbúðum sem fer út í verðið og svo þarf neytandinn að flokka ruslið. Það er líka kostnaður fyrir neytandann. Þetta eru allt of stórar umbúðir og ég hélt að fyrirtækin væru komin lengra og bæru samfélagslega ábyrgð en það er greinilega ekki þannig,“ segir Rakel.Bitum fækkað úr 24 í 12 til að mæta kröfum neytenda Pétur Blöndal er forstjóri Freyju. Hann segir að áður fyrr hafi verið 24 bitar í þessum kössum af Smádraumi en fyrirtækið hafi ákveðið að fækka þeim niður í 12 til að lækka verðið. Kassinn hafi sömuleiðis verið minnkaður við þá breytingu. „Við höfum annað slagið fengið ábendingar um þetta og þá höfum við bent fólki á að þetta var meira og helmingi dýrara. Þá var þetta orðin hálfgerð fjárfesting að kaupa sér smádraum. Þetta var bara krafa frá okkar viðskiptavinum að hafa þetta svona. Það má alltaf deila um umbúðirnar. Við höfum verið meðvitaðir um að vera umhverfisvænni og auðvitað er það ódýrara að vera með minni umbúðir,“ segir Pétur.
Mest lesið Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Vá en æðislegt: Fundurinn fellur niður í dag! Atvinnulíf Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Sjá meira