Jeep Grand Cherokee fær 707 hestafla Hellcat vél Finnur Thorlacius skrifar 23. júní 2015 09:29 Jeep Grand Cherokee.
Chrysler á bæði Dodge og Jeep bílamerkin og hefur nú þegar í boði bílana Dodge Challenger og Charger með 707 hestafla Hellcat vélar. Heyrst hefur að þar ætli fyrirtækið ekki að láta staðar numið heldur vopna enn einn bílinn úr sínu röðum þessari ógnaröflugu vél. Það sem meira er, það yrði jeppinn Jeep Cherokee og með því væri hann líklega orðinn öflugasti fjöldaframleiddi jeppi heims. Kæmi bíllinn með þessari vél fyrst af 2017 árgerð. Þessar fréttir hafa ekki fengist staðfestar frá Jeep, en bílablaðið Motor Authority segist hafa nokkuð öruggar upplýsingar um þessi áform fyrirtækisins. Með þessari 6,2 lítra V8 Hemi vél verður Cherokee ekki nema 3 sekúndur að ná 100 km hraða og hámarkshraðinn verður 320 km/klst. Nokkuð fáheyrðar tölur fyrir jeppa. Þá mun SRT útgáfa Jeep Grand Cherokee fá nokkur aukahestöflin frá fyrri útgáfu og verða 490 hestöfl. Það ætti svosem að duga flestum.
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent