Fanta Lemon aftur á markað vegna háværra aðdáenda Stefán Ó. Jónsson skrifar 27. júlí 2015 17:42 "Að því sögðu þá datt ég í Lemon-pottinn á Tene. #LemonIsl" skrifaði einn stúrinn gosdrykkjaunnandi á faraldsfæri við þessa mynd í liðinni viku. mynd/henry birgir
Gosdrykkurinn Fanta Lemon verður fáanlegur í sumar þökk sé háværum, og allt að því „aggresívum,“ kröfum gallharðra aðdáenda drykkjarins að sögn Jóns Viðars Stefánssonar markaðsstjóra gosdrykkja hjá Vífilfelli. Það hefur löngum verið vitað að drykkurinn á sér marga háværa talsmenn hér á landi sem hafa oft þurft að hafa fyrir því að gosið rati í verslanir. Til að mynda fóru gosdrykkjaunnendur í herferð á netinu í upphafi árs 2009 fyrir því að framleiðsla Fanta Lemon yrði hafin á nýju og á þriðja þúsund manns skrifaði undir áskorun þess efnis á Facebook. Hafði drykkurinn þá verið illfáanlegur frá aldamótum. Varð það til þess að Vífillfell féllst á kröfur þeirra og hóf sölu á Fanta Lemon að nýju en drykkurinn hefur verið fáanlegur í nokkra mánuði yfir hásumarið á síðustu árum. Því var þó ekki að skipta í fyrra þegar Vífilfell brá út af vananum og hóf framleiðslu á Fanta Zero síðastliðið sumar. Árið 2013 áður bauð fyrirtækið upp á Fanta með apríkósubragði og segir Jón að Vífilfell hafi leitast við að prófa nýjar tegundir af drykknum á undanförnum árum enda séu til fjölda mörg afbrigði af drykknum erlendis.Landsliðsmarkmaðurinn Gunnleifur Gunnleifsson blandaði sér í umræðuna um endurkomu Fanta Lemon, enda grjótharður aðdáandi.mynd/twitterFyrirtækið hafi þó ekki ákveðið að ráðast í neina tilraunamennsku í ár, fara aftur „back to basics“ eins og markaðsstjórinn kemst að orði, ekki síst vegna háværrar kröfu aðdáenda Fanta Lemon á samfélagsmiðlum í síðustu viku „Þetta fór mikið á flug á Twitter fyrir helgi en hafði verið aðeins í gangi fyrr í sumar. Við rákumst á þetta þá en þetta var ekki með jafn aggresívum hætti og í síðustu viku og þá fórum við að skoða þetta af fullri alvöru að gera þetta, að bregðast við og svara kallinu“ segir Jón Viðar. Jón segir að gosþyrstir ættu fljótlega að geta nælt sér í flösku í næstu verslun, drykkurinn sé við það að detta í verslanir. Aðdáendur Fanta Lemon geta þó ekki setið að sumbli endalaust, drykkurinn verður einungis í boði tímabundið og gerir Jón Viðar ráð fyrir að hann verði alfarið horfinn úr verslunum í lok ágúst. Hér að neðan má sjá umfjöllun fréttastofu Stöðvar 2 af því þegar tekið var að framleiða Fanta Lemon að nýju í maí árið 2009.
Tengdar fréttir Ekkert Fanta Lemon á Íslandi í sumar Vífilfell leggur áherslu á sölu sykurlauss ávaxtasafa þetta sumarið. 2. júlí 2014 10:46 Mest lesið Vá en æðislegt: Fundurinn fellur niður í dag! Atvinnulíf Greiðsluáskorun Samstarf Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Viðskipti innlent „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Sjá meira
Ekkert Fanta Lemon á Íslandi í sumar Vífilfell leggur áherslu á sölu sykurlauss ávaxtasafa þetta sumarið. 2. júlí 2014 10:46