Olíuverð ekki verið lægra í sex ár ingvar haraldsson skrifar 19. ágúst 2015 08:00 Framboð á olíu hefur aukist að undanförnu en hægst á aukningu eftirspurnar sem skýrir lægra verð að sögn Ketils. vísir/getty
Verð á Brent hráolíu er komið niður fyrir 49 bandaríkjadali á tunnu og hefur ekki verið lægra frá árinu 2009. Greiningaraðilar búast við því að olíuverð haldist lágt um næstu misseri. BMI Research, sem er hluti af greiningarfyrirtækinu Fitch, býst við að olíuverð haldist lágt fram til ársins 2018 þar sem framboð á olíu muni líklega aukast hraðar en eftirspurn eftir neysluvörum.Ketill Sigurjónsson segir eftisprunarslaka í Kína helstu ástæðu lækkandi olíuverðs.Ketill Sigurjónsson, lögfræðingur og sérfræðingur í orkumálum, býst við að verða á olíu og annarri hrávöru haldist lágt. „Til skemmri tíma litið, ef við lítum eitt ár fram í tímann, verður olíuverð alveg örugglega mjög lágt. Miðað við spár sem hafa verið að koma fram undanfarið hafa verið að koma fram eru menn að verða heldur svartsýnni. Goldman Sachs og fleiri eru að spá mjög lágu hrávöruverði, næstu þrjú árin,“ segir Ketill. Ketill telur helstu skýringuna á lækkandi olíuverði vera að hægst hafi á efnahagsvextinum í Kína. Á sama tíma hafi olíuframleiðsla í Bandaríkjunum aukist. „Þegar þetta tvennt fer saman er mjög eðlilegt að olíuverð lækki.“ segir Ketill. „Eftirspurnarslakinn í Kína virðist vera meiri en nokkur bjóst við. Þetta kemur líka fram í verði á mörgum öðrum hrávörum sem hafa verið að lækka mjög mikið. Það má eiginlega rekja það allt saman til Kína,“ segir Ketill. Fjárfestar hafi veðjaða á að efnahagsvöxturinn í Kína myndi halda áfram sem valdið hafi offjárfesting í orkuiðnaðnum. „Menn bjuggust við því að það yrði alltaf meiri og meiri eftirspurn frá Kína. Um leið og það er smá slaki þá sitja menn uppi með öll nýju verkefnin og fara að bjóða lægri verð. Þá gerist það mjög hratt að verðið fer niður,“ segir Ketill. Við þetta bætist að hagvöxtur í Evrópu sé lítill. Þá séu líkur á að efnahagsþvingunum gagnvart Írönum verði aflétt á næstunni sem aukið gæti olíuútflutning Írana sem stuðli enn frekar að því að olíuverð haldist lágt. Lækkun olíuverðs skiptir Íslendinga miklu máli. Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir að eins króna lækkun bensínverðs skili íslenskum neytendum 300 milljónum króna á ársgrundvelli. Þá sagði Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar Landsbankans, á fundi um Hagfræðideildarinnar í mars að haldist olíuverð lágt gæti það sparað íslensku þjóðarbúi 40 milljarða króna á ári. Ketill á þó von á því að sé horft til lengri tíma muni olíuverð hækka á ný. Haldist olíuverð jafn lágt og nú standi ný olíuverkefni ekki undir sér. Að lokum muni það hafa í för með sér að framboð eftir olíu dragist saman muni það þrýsta verðinu upp á ný miðað við óbreytta eftirspurn sem muni þrýsta verðinu upp á ný. Hvenær það verði og hve mikið verð hækki sé hins vegar nær ómögulegt að spá fyrir um.
Mest lesið Vá en æðislegt: Fundurinn fellur niður í dag! Atvinnulíf Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Hulda til Basalt arkitekta Viðskipti innlent Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Viðskipti innlent Fleiri fréttir Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Sjá meira