RIFF kynnir 40 kvikmyndir sem verða á hátíðinni Stefán Árni Pálsson skrifar 28. ágúst 2015 13:46 Virkilega spennandi dagskrá framundan á RIFF.
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík verður sett þann 24. september næstkomandi og nú þegar akkúrat 4 vikur eru til hátíðar eru kynntar 40 myndir sem verða á dagskrá þá 11 daga sem hátíðin stendur. Myndirnar sem nú eru kynntar eru annars vegar heimildarmyndir og myndir í keppnisflokkunum Open Seas þar sem sérstaklega eru valdar myndir sem vakið hafa athygli á kvikmyndahátíðum undanfarin misseri og flokknum A Different Tomorrow sem inniheldur myndir sem taldar eru geta bætt heiminn í kringum okkur. Það kennir ýmissa grasa í listanum að neðan, allt frá heimildarmyndum um Hollywoodstjörnur sem fallnar eru frá, um stjórnarskrárbreytingar í Zimbabwe og þá mynd um líf og störf sælkera og matargagnrýnanda. Fjölmargar myndir eru bæði Norðurlanda- og Evrópufrumsýndar á RIFF í ár og nokkrar af myndunum verða teknar til sýninga á kvikmyndahátíðunum í Feneyjum og Toronto sem eru á næsta leiti. Í tilkynningu frá forsvarsmönnum RIFF vilja þeir minnast sérstaklega á eftirfarandi myndi sem vakið hafa mikla athygli á undanförnum misserumCartel Land Heimildarmynd eftir Matthew Heineman frá Bandaríkjunum sem segir sögu tveggja sjálfskipaðra löggæslumanna sem hafa ákveðið að leggja allt í sölurnar til að kveða niður vargöldina sem geisað hefur í Mexíkó vegna stríða glæpagengja þar í landi. Myndin var frumsýnd á Sundance kvikmyndahátíðinni og naut þar mikilla velgengni, hlaut meðal annars verðlaun fyrir bestu leikstjórn og kvikmyndatöku.Ingrid Bergman in her own Words Heimildarmynd eftir hinn sænska Stig Björkman. Í myndinni eru birt áður óbirt dagbókarbrot, bréf og myndefni Ingrid Bergman sem varpa nýju ljósi á heillandi sögu venjulegrar sænskrar stúlku sem á stuttum tíma varð stærsta stjarnan í Hollywood. Myndin hlaut sérstök dómnefndarverðlaun á Cannes-kvikmyndahátíðinni í maí.Heimildarmyndin Pervert Park Hjónin Frida og Lasse Barkfors lögðu í það krefjandi ferðalag að heimsækja hjólhýsagarðinn Florida Justice Transition þar sem safnast hafa saman dæmdir kynferðisbrotamenn sem reyna á nýjan leik að aðlagast samfélaginu. Myndin segir sögu þeirra á hreinskilin og umbúðalausan hátt.Drone eftir Terje Hissen Schei Heimildarmynd sem fjallar um notkun CIA og bandaríkjahers á flygildum í hernaði. Myndin segir bæði sögu íbúa í Pakistan sem búa við sífellda ógn vopnanna og þá innri baráttu þeirra sem stýra tólunum. Schei hefur á undanförnum árum unnið til fjölmargra friðar- og mannúðarverðlauna á kvikmyndahátíðum víða heim.Tangerine eftir leikstjórann Sean Baker Þessi frumlega og fjöruga mynd fjallar trans-vændiskonuna Sin-Dee sem hefur leit um alla Los Angeles að dólgnum Chester sem hélt framhjá henni á meðan mánaðarlangri fangelsisdvöl hennar stóð. Myndin var öll tekin upp á þremur iPhone 5 snjallsímum og vann til verðlauna á Karlovy Vary hátíðinni.Journey to the Shore eftir Kiyoshi Kurosawa Þremur árum eftir að Yusuke drukknaði undan norðuströnd Japans, snýr hann aftur heim til ekkju sinnar Mizuki og býður henni í ferðalag að ströndinni þar sem hann kvaddi heiminn. Ljúfsár drauga-ástarsaga sem sýnir að náin tengsl geta náð út fyrir dauðann. Myndin hlaut leikstjórnarverðlaun í Un Certain Regard flokknum á Cannes.Ingrid BergmanMarlon BrandoPervert ParkCartel Land ALLAR MYNDIR Í STAFRÓFSRÖÐ1989 A Flickering Truth Around the World in 50 Concerts Cartel Land Chasukes Journey Chevalier Democrats Drones Eisenstein in Guajanato Embrace of the Serpent Foodies Haida Gwaii: On the Edge of the World How to Change the World Jäg är Ingrid Jia Zhang-ke: A Guy from Fenyang Journey to the Shore Last Days in the Desert Last of the Elephant Man Leaving Africa Listen to Me Marlon Mountains May Depart Pervert Park Rolling Papers Sweet Mickey Tangerine The Amina Profile The Arms Drop The Circus Dynasty. The Closer We Get. The Living Fire. The Measures of a Man The Messenger The Other Side The Queen of Silence The Shore Break The Wanted 18 Those Who Fall have Wings War of Lies Warriors from the North Who Took Johnny
RIFF Mest lesið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Fleiri fréttir Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Cruise tekur á loft í þriðja sinn Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Joy Harmon er látin Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Hugmyndir að hámhorfi um páskana Hera verður ástkona JFK Margt að sjá í nýrri stiklu fyrir þættina um Harry Potter Colbert skrifar handrit nýrrar myndar úr Hringadróttinssögu Stjarna úr Married at First Sight látin Chuck Norris er látinn Breyta Reykjavík í kvikmyndagallerí út mánuðinn Chuck Norris lagður inn á spítala Spacey sleppur við dómsalinn með sátt við þrjá menn Senn kemur Zendaya: Sturlaðar stiklur fyrir Dune III og Köngulóarmanninn Færðu Penn Óskar fyrst hann missti af hátíðinni Sjöunda jafnteflið á 98 árum Bæði fyrsta konan og svarta manneskjan til að vinna One Battle After Another bar sigur úr býtum Hulunni svipt af Taskmaster Hvernig fer Óskarinn? Teboð með Ryan Gosling og helstu skvísunum í Smárabíói Rapparar slíðruðu sverðin á galaforsýningu Stikla úr Jóhönnu af Örk Gagnrýndi Tarantino fyrir n-orðið og fékk gusuna yfir sig Sjá meira