Olíuvinnsla verði nauðsynleg í áratugi Svæðisstjóri hjá bandarísku orkustofnuninni BOEM segir olíuvinnslu vera nauðsynlega næstu áratugi þar til betri orkugjafar finnist. Olíuleki BP í Mexíkóflóa hafi breytt miklu fyrir olíugeirann 22. ágúst 2015 11:30 Borgar sig að bora Dr. James Kendall sérfræðingur í orkumálum og svæðisstjóri hjá BOEM í Alaska.fréttablaðið/gva „
Við áttum okkur á að að líkindum verði áfram þörf fyrir olíu og gas næstu áratugi. En nú þurfum við að vinna olíu og gas með ábyrgum hætti gagnvart umhverfinu,“ segir James Kendall, svæðisstjóri Bureau of Ocean Energy Management (BOEM) í Alaska. BOEM heyrir undir bandaríska innanríkisráðuneytið og er ábyrgt fyrir nýtingu orkugjafa á hafi úti, þar á meðal olíu, gass og endurnýtanlegra orkugjafa. „Vonin er að með tímanum verði hægt að færa sig frá jarðefnaeldsneyti til endurnýjanlegra orkugjafa. En við áttum okkur á að að líkindum verði áfram þörf fyrir olíu og gas næstu áratugi. En nú þurfum við að vinna olíu og gas með ábyrgum hætti gagnvart umhverfinu,“ segir Kendall. Hins vegar hafi tækninýjungar haft í för með sér að vistvænt fótspor olíuvinnslu hafi dregist saman síðustu áratugi. „Við erum því miður mjög háð olíu og gasi og við þurfum að færa okkur frá því og yfir í endurnýtanlega orkugjafa líkt og Ísland notar. Sú breyting gerist hins vegar ekki á einni nóttu og á meðan þarf að fá orkuna einhvers staðar frá,“ segir hann. Bent hefur verið á að á stórum svæðum borgi sig ekki að bora eftir olíulindum sem vitað sé um vegna lágs olíuverðs. Kendall segir að það taki langan tíma að hefja olíuvinnslu við norðurskautið vegna erfiðra aðstæðna. „Jafnvel þó olíuverð sé lágt núna, þá verður það kannski ekki lágt eftir fimm ár eða tíu ár.“ Hann segir umhverfið við olíuvinnslu við norðurheimskautið afar krefjandi „Það er myrkur og kuldi marga mánuði á ári, innviðir eru takmarkaðir, bæirnir eru fámennir, það eru fáir vegir og engar djúpsjávarhafnir. Svo það þarf að flytja allan búnað sem þarf til djúpsjávarborunar á staðinn.“ Kendall segir olíuleka British Petroleum í Mexíkóflóa hafa breytt miklu. „Við höfum þetta alltaf í huga. En nú er búnaðurinn sem hanna þurfti til að stöðva lekann skyldubúnaður á staðnum,“ segir Kendall. Hann segir slík slys afar fátíð. „Slysið varð á könnunarstigi olíuvinnslunnar. Það var mjög óheppilegt en slys á könnunarstigi eru mjög sjaldgæf,“ segir hann. Hins vegar þurfi að hafa þetta í huga við olíuvinnslu undan ströndum Alaska. „Þetta er einstakt svæði, það eru hvalir, rostungar og ísbirnir þarna svo það þarf að virða umhverfið sem og frumbyggja sem búa á svæðinu.“ Shell fékk í síðustu viku gefin út leyfi frá bandarískum stjórnvöldum til borunar við norðurheimskautið. Hillary Clinton, sem sækist eftir því að verða forsetaefni demókrata í forsetakosningunum árið 2016, gaf út í síðustu viku að hún væri mótfallin olíuvinnslu við norðurheimskautið. „Það er mikil umræða um hvar olíu- og gasvinnsla eigi að eiga sér stað. Undir stjórn Obama Bandaríkjaforseta hefur áherslan verið á ábyrga nýtingu allra orkugjafa.“
Mest lesið Vá en æðislegt: Fundurinn fellur niður í dag! Atvinnulíf Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Hulda til Basalt arkitekta Viðskipti innlent Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Viðskipti innlent Fleiri fréttir Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Sjá meira