Módel sem virkar Stjórnarmaðurinn skrifar 9. september 2015 11:30
Knattspyrnusambandið á von á mikilli fjárinnspýtingu eftir að ljóst varð að íslenska landsliðið tekur þátt í Evrópumótinu á næsta ári. Af fregnum að dæma fær sambandið að lágmarki 12 milljónir evra (eða rétta 1.7 milljarða króna) fyrir þátttökuna eina saman. Sú upphæð hækkar svo væntanlega í samræmi við árangur í mótinu, og við hana má bæta ýmsum afleiddum tekjum sem sambandið á von á, svo sem bættum styrktarsamningum, aukinni aðsókn í æfingaleiki í aðdraganda mótsins og svo áfram mætti telja. Áhugavert verður að sjá rekstraráætlun KSÍ fyrir árið 2016. Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, lýsti því yfir í miðjum fagnaðarlátum á Ingólfstorgi að þeim fjármunum sem til falla verði varið til aðildarfélaga KSÍ. Það hljómar skynsamlega enda má með sanni segja að árangur karlalandsliðsins (og kvennalandsliðsins) sé uppskera gríðarlega öflugs grasrótarstarfs. Það er í raun lyginni líkast að í jafn fámennu landi sé rekin jafn metnaðarfull deildarkeppni bæði í karla og kvennaflokki. Hér eru líka menntaðir og metnaðarfullir yngri flokka þjálfarar sem sjá til þess að áhugasamir fái bestu leiðsögn sem völ er á allt frá fyrstu spyrnu. Stjórnarmaðurinn er ekki viss um að fólk geri sér grein fyrir hversu einstakt þetta er í alþjóðlegu samhengi. Því hljómar skynsamlegt hjá framkvæmdastjórunum að beina fjármununum til aðildarfélagana sem hingað til hafa sýnt að þeim er treystandi fyrir fé.Að þekkja sinn vitjunartíma Forsetinn setti í gær Alþingi í “síðasta sinn” að eigin sögn. Hann eftirlætur hins vegar þjóðinni og fréttamönnum að túlka orð sín, og hvort hann eigi þarna við þetta tiltekna Alþingi sem nú situr, eða hvort hann er að boða að hann hyggist ekki bjóða sig fram að nýju. Yfirlýsingin er í anda þess sem áður hefur heyrst úr þessari átt, eða hver man ekki eftir haltu mér slepptu mér senunni fyrir síðustu forsetakosningar? Forsetinn unir sér aldrei betur en þegar hann er milli tannanna á fólki, og telur vafalaust að ekki sé um annað gasprað á heimilum landsmanna en hvort hann hyggist heima sitja eða af stað fara í enn eitt skiptið. Um þessar mundir eru þó mun áhugaverðari og skemmtilegri hlutir að ræða. Velgengni knattspyrnulandsliðsins, og frækileg framganga körfuboltamannanna á Evrópumótinu í Berlín til dæmis. Háttvirtur forseti, það er ólíklegt að jörðin hætti að snúast þótt þú látir af embætti. Þetta er komið gott.Stjórnarmaðurinn er sigldur innherji með puttann á púlsinum. Stjórnarmaðurinn skrifar í Markaðinn í Fréttablaðinu á miðvikudögum og liggur ekki á skoðunum sínum um menn og viðskiptaleg málefni.
Mest lesið Greiðsluáskorun Samstarf Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Viðskipti innlent Hulda til Basalt arkitekta Viðskipti innlent Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Viðskipti innlent Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Viðskipti erlent Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Sjá meira