86,4% launþega aðilar í stéttarfélagi Sæunn Gísladóttir skrifar 3. september 2015 09:19 Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Vísir/GVA
86,4% launþega, eða 134.200 manns voru, samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands, aðilar að stéttarfélagi árið 2014. Um 8% sögðust ekki vera aðilar að stéttarfélagi og 5,6% tóku ekki afstöðu eða vissu ekki hvort þeir væru aðilar að stéttarfélagi. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar. Þátttaka virðist aukast með aldrinum. 89,2% launþega á aldrinum 25 til 54 ára eru aðilar að stéttarfélögum og 90,3% 55 til 74 ára. Þátttakan er mun lægri hjá launþegum í yngsta aldurshópnum, 16 til 24 ára, en þar segjast 72% vera aðilar að stéttarfélögum, um 10% segjast ekki vera í stéttarfélögum og 18% tóku ekki afstöðu eða vissu ekki hvort þeir væru aðilar að stéttarfélagi. Fleiri konur eru í stéttarfélögum en karlar, 90,9% kvenna voru aðilar að stéttarfélögum á móti 81,7% karla. Alþýðusamband Íslands, ASÍ, er langstærstu heildarsamtök launafólks í landinu, en 56,4% þeirra sem voru í stéttarfélagi árið 2014 voru félagsmenn í aðildarfélögum ASÍ. Næst stærst er Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, BSRB, með 14,7%, þar á eftir kemur Bandalag háskólamanna, BHM, með um 8,1% og Kennarasamband Íslands, KÍ, með 7,6%.
Mest lesið Vá en æðislegt: Fundurinn fellur niður í dag! Atvinnulíf Greiðsluáskorun Samstarf Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Viðskipti innlent Hulda til Basalt arkitekta Viðskipti innlent Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Viðskipti innlent Fleiri fréttir Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Sjá meira