Landsvirkjun frestar takmörkun á orkuafhendingu Atli Ísleifsson skrifar 18. september 2015 18:43 Þrátt fyrir aukið innrennsli á síðustu dögum telst vatnsárið enn mjög þurrt og ríkir áfram óvissa um fyllingu miðlunarlóna fyrir veturinn, segir í tilkynningu Landsvirkjunar. Vísir/Pjetur
Landsvirkjun hefur ákveðið að fresta mögulegri takmörkun á afhendingu rafmagns til viðskiptavina samkvæmt sveigjanlegum samningum um einn mánuð. Þetta sé gert í ljósi bættrar miðlunarstöðu eftir aukið innrennsli í miðlunarlón á síðustu vikum. Í tilkynningu frá Landsvirkjun kemur fram að þrátt fyrir aukið innrennsli á síðustu dögum veljist vatnsárið enn mjög þurrt og ríkir áfram óvissa um fyllingu miðlunarlóna fyrir veturinn. „Sumarmánuðirnir júlí og ágúst voru fremur kaldir og óhagstæðir hvað varðar innrennsli til miðlana Landsvirkjunar. Vegna kuldans var jökulleysing lítil, sérstaklega í júlí þegar rennsli ætti að vera hvað mest miðað við árstíma. Upp úr miðjum ágústmánuði fór innrennsli hinsvegar að taka lítillega við sér, samhliða auknum lofthita, þó svo að mánuðurinn í heild hafi verið fremur þurr. Í lok ágúst var rennsli nálægt meðallagi miðað við árstíma á öllum rekstrarsvæðum. Staða í miðlunum fyrirtækisins í lok ágúst var slæm, sérstaklega í Hálslóni. Í ljósi stöðunnar tilkynnti Landsvirkjun viðskiptavinum sínum í byrjun september að líklega þyrfti að nýta ákvæði í samningum og draga úr raforkuframboði í vetur. Fyrstu dagar septembermánaðar einkenndust af fremur hæglátu veðri og lægri lofthita en hafði verið síðari hluta ágúst, einkum á hálendinu og dró fremur úr innrennsli. Þann 5. september gekk hlýtt loft úr suðri yfir landið og fylgdi úrkoma og hvassviðri fljótlega í kjölfarið. Þessi veðrátta hélst dagana á eftir og mældist hlýjasti dagur sumarsins á landsvísu mánudaginn 7. september. Þann daginn mældist hæsti hiti ársins, 24,1°C, á Seyðisfirði.Mesta innrennsli í Hálslón í september frá því miðlunin var tekin í notkun Í kjölfar hlýindanna tók innrennsli mikið við sér, einkum á Austurlandi, en þar fór hæsta dagsmeðaltal innrennslis til Hálslóns í 580 m3/s þann 13. september, en það er mesta innrennsli í september frá því miðlunin var tekin í notkun. Í september hefur heildarfylling miðlana fyrirtækisins batnað verulega og stendur fyllingin nú í 85,5% en var 69,0% í lok ágúst. Mest hefur aukningin verið á Austurlandi, en frá mánaðarmótum hefur hækkað í Hálslóni um 12 metra og fylling miðlunarinnar farið úr 59% í 84%. Fylling Þórisvatns og Hágöngulóns hefur farið úr 83% í 89% á sama tímabili og Blöndulóns úr 67% í 74%. Landsvirkjun mun halda áfram að endurmeta stöðuna og upplýsa um breytt áform eftir því sem tilefni er til,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Greiðsluáskorun Samstarf Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Viðskipti innlent Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Viðskipti innlent Hulda til Basalt arkitekta Viðskipti innlent Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Sjá meira