Bandaríska fyrirtækið The Weinstein Company hefur tryggt sér sýningarréttinn að íslensku glæpaþáttaröðinni Ófærð í Bandaríkjunum. Að Weinstein-fyrirtækinu standa bræðurnir Bob og Harvey Weinstein sem eru kvikmynda unnendum að góðu kunnir. Bræðurnir stofnuðu fyrirtækið Miramax-films árið 1979 en í tíð þeirra hjá The Weinstein Company og Miramax hafa þeir hlotið 341 Óskarstilnefningu og unnið 81 Óskarsverðlaun.
Frá árinu 2005 hefur The Weinstein Company gefið út myndir á borð við Inglourious Basterds, The Kings Speech, The Artist, The Master, Silver Linings Playbook, Django Unchained, Philomena, The Imitation Game, The Reader og Vicky Cristina Barcelona, svo dæmi séu tekin.
Weinstein-fyrirtækið státar af nokkrum sjónvarpsverkefnum sem hafa verið tilnefnd til níu Emmy-verðlauna árið 2013 og fimm árið 2014.
Þættirnir segja frá líkfundi í íslenskum bæ í þann mund sem óveður skellur og lamar allar samgöngur. Það gerir það að verkum að íbúarnir eru veðurtepptir í bænum á meðan rannsóknin stendur yfir.
Weinstein-bræðurnir tryggja sér sýningarréttinn að Ófærð

Tengdar fréttir

Ófærð fær 75 milljónir króna frá ESB
Langstærsti styrkur frá upphafi þátttöku Íslendinga í MEDIA kvikmyndaáætlun ESB.

Ófærð sýnd á RIFF
Lokamynd Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, RIFF, í ár verða fyrstu tveir þættirnir af Ófærð

Fyrsta stiklan úr Ófærð
Óhugnalegir atburðir eiga sér stað í þáttum Baltasars Kormáks, Ófærð.

Tryggja sér dreifingarétt á mynd Baltasars á heimsvísu
The Oath segir frá lækni sem missir tök á lífi sínu eftir að dóttir hans byrjar með glæpamanni.