Guðmundur nýr framkvæmdastjóri AFS á Íslandi Atli Ísleifsson skrifar 24. september 2015 11:42 Guðmundur hefur starfað á alþjóðasviði 66°Norður frá árinu 2011. Mynd/AFS
Guðmundur Gunnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri AFS á Íslandi. Guðmundur hefur starfað á alþjóðasviði 66°Norður frá árinu 2011, en þar áður sem frétta- og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV. Hann er með meistarapróf í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík og B.A. próf í fjölmiðlafræði frá Háskólanum á Akureyri. Jóna Fanney Friðriksdóttir, sem hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra AFS síðastliðin fjögur ár, sagði starfi sínu lausu nýverið en mun starfa áfram fyrir samtökin samhliða nýjum framkvæmdastjóra til áramóta. Guðmundur segir virkilega spennandi að ganga til liðs við AFS á þessum tímapunkti. „Fræðslusamtök, sem hafa það að leiðarljósi að auka skilning milli þjóða og brúa bilið milli fólks af ólíkum uppruna, gegna lykilhlutverk í samfélaginu. Ekki síst um þessar mundir. Ég hlakka til að vinna með starfsfólki AFS, fráfarandi framkvæmdastjóra og öflugum hópi sjálfboðaliða að áframhaldandi uppgangi AFS á Íslandi,“ segir Guðmundur. Í tilkynningu frá AFS segir að stjórn AFS á Íslandi bjóði Guðmund velkominn til starfa en vilji um leið þakka Jónu Fanneyju Friðriksdóttur frábær störf í þágu samtakanna undanfarin ár.AFS eru alþjóðleg fræðslusamtök sem starfa í yfir fimmtíu löndum í öllum heimsálfum, en aðalviðfangsefni samtakanna hér á landi er nemendaskipti unglinga á aldrinum 15 til 18 ára.
Mest lesið Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Viðskipti erlent Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Viðskipti innlent Hulda til Basalt arkitekta Viðskipti innlent Fleiri fréttir Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Sjá meira