Heildarfjáreignir innlendra efnahagsgeira námu 1.173% af landsframleiðslu Sæunn Gísladóttir skrifar 12. október 2015 09:17 Heildarfjáreignir lífeyrissjóða námu 2.928 mö. kr. í árslok 2014 sem samsvarar 147% af landsframleiðslu. Vísir/Pjetur
Heildarfjáreignir innlendra efnahagsgeira námu 1.173% af landsframleiðslu í árslok 2014 en á sama tíma töldu fjárskuldbindingar 1.49% af landsframleiðslu. Af heildarfjárskuldbindingum telja hæst fjárskuldbindingar fyrirtækja annarra en fjármálafyrirtækja en fast á hæla þeirra koma fjárskuldbindingar fjármálafyrirtækja í slitameðferð en þær eru að mestu bundnar við erlenda kröfuhafa. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar. Fjáreignir og –skuldbindingar fyrirtækja annarra en fjármálafyrirtækja jukust hratt 2005–2007, en hafa dregist mikið saman og náð ákveðnu jafnvægi á undanförunum árum. Fjármálareikningar fjalla sérstaklega um fjármálafyrirtæki og undirgeira þeirra. Heildarfjáreignir fjármálafyrirtækja námu tæplega sjöfaldri landsframleiðslu í árslok 2014. Fjármálafyrirtæki í slitameðferð eru birt sem sér undirgeiri í íslensku fjármálareikningunum en ljóst er að umfang þeirra í íslenska fjármálakerfinu er umtalsvert og verður þar til uppgjör á þrotabúum föllnu bankanna liggur fyrir. Einnig eru bundnar fjármálastofnanir nú birtar sem sérstakur undirgeiri. Heildarfjáreignir þeirra námu um 82,6% af landsframleiðslu í árslok 2014. Heildarfjáreignir lífeyrissjóða námu 2.928 mö. kr. í árslok 2014 sem samsvarar 147% af landsframleiðslu, en fjármálareikningarnir gefa góða heildarsýn yfir breytingar á eignasafni lífeyrissjóðanna. Fjáreignir heimila stóðu í 3.981 mö. kr. í árslok 2014 en heildarfjárskuldbindingar þeirra voru 1.919 ma. kr. á sama tíma. Af fjáreignum heimilanna telja lífeyrisréttindi hæst eða tæplega 2.897 ma. kr. í árslok 2014. Hafa ber í huga að fastafjármunir, eins og fasteignir eru ekki meðtaldir í reikningunum, en samspil fjáreigna og annarra fjármuna gefa heildarsýn á eiginfjárstöðu heimilanna.
Mest lesið Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Vera sem varð til eftir gott vinkonuspjall á sunnudegi Atvinnulíf Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Viðskipti innlent Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Samstarf Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Forstjórinn sem byrjar daginn á því að horfa á fallegu konuna sína Atvinnulíf Fleiri fréttir Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Sjá meira