Gáfu 2800 kíló af ís Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. október 2015 20:01 Guðrún Hafsteinsdóttir er markaðsstjóri Kjöríss. Vísir/Vilhelm „
Ísdagurinn er dæmi um markaðsherferð sem við fórum gagngert í til að byggja undir Kjörís-vörumerkið. Á þessum degi líka viljum við bjóða fólki til okkar og gefa því ís. Við gáfum 2800 kíló af ís núna í ágúst,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri Kjöríss. Hún er á meðal frummælenda á morgunfundi Ímark um vægi markaðsstarfs í íslenskum fyrirtækjum á morgun. Þar verður rætt um markaðssetningu fyrirtækja. Guðrún segir að Kjörís trúi því að Ísdagurinn sé gott tilefni til að eignast nýja viðskiptavini og leggja rækt við þá sem fyrir eru í viðskiptum. „Svo viljum við líka á þessum degi sýna að við erum lifandi fyrirtæki og til í að gera næstum því allt,“ segir Guðrún. Þar vísar Guðrún til þess að Kjörís hafi boðið upp á mjög frumlegar ísgerðir á ísdeginum. Aðrir frummælendur á fundinum verða Kristín Eysteinsdóttir Borgarleikhússtjóri, Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka, og Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár. „Okkar sérstaða liggur í því að við erum ekki með markaðsdeild í Kjörís heldur er þetta bara ég,“ segir Guðrún. Guðrún segir þó hægt að reka markaðsstarf með góðum árangri þótt peningarnir séu ekki miklir. En það verði fróðlegt að heyra muninn á áherslum Kjöríss og svo stærri fyrirtækja sem hafa úr meira fjármagni að spila.
Mest lesið Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Vera sem varð til eftir gott vinkonuspjall á sunnudegi Atvinnulíf Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Viðskipti innlent Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Samstarf Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Forstjórinn sem byrjar daginn á því að horfa á fallegu konuna sína Atvinnulíf Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Fleiri fréttir Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Sjá meira