Mikilvægt að bankar séu ekki reknir eins og spilavíti Heimir Már Pétursson skrifar 20. október 2015 12:52 Formaður efnahags- og viðskiptanefndar segir mikilvægt að bankarnir verði í íslenskri eigu og að þeir verði reknir fyrir samfélagið en ekki eins og spilavíti. vísir/vilhelm
Formaður efnahags- og viðskiptanefndar segir mikilvægt að viðskiptabankarnir verði ekki reknir eins og spilavíti líkt og á árum áður, heldur til að þjóna samfélaginu. Það gæti því orðið farsæl lausn að kröfuhafar í þrotabú Glitnis afhentu ríkissjóði Íslandsbanka sem þá muni eiga bankann að fullu. Hinn 8. júní 2015 birti fjármála- og efnahagsráðuneytið tillögur hóps kröfuhafa Glitnis og ráðgjafa hans um aðgerðir til að greiða fyrir lokum slitameðferðar Glitnis. Fjármálaráðuneytið greindi síðan frá því á vef ráðuneytisins snemma í morgun að hópur kröfuhafa Glitnis hf. hefði í gær lagt til breytingar á fyrri tillögu sinni. Sem hluti af stöðugleikaframlagi muni Glitnir afsala öllu hlutafé ISB Holding ehf., sem er eigandi 95% hlutafjár Íslandsbanka hf., til stjórnvalda. Eigið fé Íslandsbanka nam um 185 ma.kr. í lok júní 2015. Vegna þessarar breytingar myndu eftirfarandi þættir í fyrri tillögum kröfuhafa Glitnis falla niðurniður: Afkomuskiptasamningur um arðsemi hlutafjár Íslandsbanka, skilyrt skuldabréf að fjárhæð 119 ma.kr., arðgreiðsla Íslandsbanka í erlendum gjaldeyri að fjárhæð 16 ma.kr. til Glitnis og aðrar fyrirhugaðar arðgreiðslur. Framsal lausafjáreigna, reiðufjár og ígildi reiðufjár, muni samkvæmt framangreindri tillögu lækka um 16 ma.kr. vegna fyrirhugaðrar arðgreiðslu í erlendum gjaldeyri til Glitnis, sem ekki verði af og 36 ma.kr. vegna annarra breytinga sem felist í endurskoðuðum tillögum kröfuhafa Glitnis. Frosti Sigurjónsson formanni efnahags- og viðskiptanefndar lýst vel á þessar hugmyndir með þeim fyrirvara að hann eigi eftir að fá nánari útlistun á tillögu kröfuhafanna. „Vegna þess að með þessu ef ég skil þessar fyrstu fréttir rétt, en ég tek fram að ég á eftir að fá betri yfirferð yfir málið, muni minna af krónum verða breytt í gjaldeyri með þessu móti og áhrifin af slitum búsins verði minni á greiðslujöfnuðinn,“ segir Frosti. Hann hafi alltaf verið þeirra skoðunar að lausnin á gjaldeyrisvandanum vegna þrotabúa bankanna væri að erlendir kröfuhafar skildu bankana eftir í íslenskri eigu.Myndir þú þá vilja að Íslandsbanki yrði til framtíðar í eigu íslenska ríkisins? „Það er síðan allt önnur spurning. Ég hef ekki mótað mér afstöðu í því. Ég held að það sé ekki endilega æskilegt til lengri tíma séu allir bankar í eigu ríkisins. En ég hef talað fyrir því hingað til að á meðan það er fákeppni á markaðnum sé mjög mikilvægt að alla vega einn banki rekinn með þeim sjónarmiðum að þjóna samfélaginu og skila hóflegum hagnaði en ekki hámarka hagnað. Þá gæti verið hlutverk fyrir ríkið að eiga einn slíkan banka,“ segir Frosti. Hins vegar sé hann sannfærður um að það sé mikilvægt að bankarnir séu ekki í eigu erlendra aðila. „Bankar búa ekki til gjaldeyri með sinni starfsemi. Hins vegar þarf alltaf að breyta arðinum yfir í gjaldeyri, sem þannig þarf þá að koma úr okkar gjaldeyrisforða. Þannig að ég tel að það sé mjög mikilvægt að við rekum okkar banka og þessir bankar séu ekki spilavíti eins og þeir voru orðnir fyrir hrun, heldur séu bankar sem þjóna hagkerfinu og samfélaginu,“ segir Frosti Sigurjónsson.
Mest lesið Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Vera sem varð til eftir gott vinkonuspjall á sunnudegi Atvinnulíf Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Viðskipti innlent Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Samstarf Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Forstjórinn sem byrjar daginn á því að horfa á fallegu konuna sína Atvinnulíf Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Fleiri fréttir Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Sjá meira