Chile lokar á innflutning laxahrogna Svavar Hávarðsson skrifar 31. október 2015 08:00 Stofnfiskur er annað af stærstu fyrirtækjum heims í framleiðslu lifandi laxahrogna og hefur setið eitt að markaði í Chile. mynd/stofnfiskur
Yfirvöld í Chile hafa fyrirskipað tímabundið innflutningsbann á íslenskum laxahrognum. Ástæðan er veirusýking sem greindist nýlega í hrognkelsum hjá Tilraunastöð Hafrannsóknastofnunar í Grindavík sem ætluð voru til undaneldis á seiðum sem flytja átti til Færeyja þar sem þau eru nýtt af þarlendum laxeldisfyrirtækjum til að halda niðri laxalús í sjókvíaeldi. Bannið snertir fyrirtækið Stofnfisk beint, stærsta framleiðanda laxahrogna hér á landi, sem eitt fyrirtækja í heiminum hefur haft heimild til að selja laxahrogn til Chile. Undanfarin ár hefur heildarsala Stofnfisks á laxahrognum til Chile verið verulegur hluti af framleiðslu fyrirtækisins, og þar af leiðandi tekjum. Stofnfiskur framleiddi laxahrogn fyrir vel á annan milljarð í fyrra. Í frétt Stofnfisks vegna málsins á heimasíðu fyrirtækisins er það skýrt tekið fram að um tímabundið innflutningsbann sé að ræða og standa vonir forsvarsmanna þess til að niðurstaða rannsókna yfirvalda í Chile liggi fyrir sem allra fyrst, eða í síðasta lagi fyrir áramót. Eins er hnykkt á því að eldi hrognkelsa í Grindavík, en Stofnfiskur er samstarfsaðili Hafró í því verkefni, kemur framleiðslu á laxahrognum í raun ekkert við og smit á milli eldisstöðva í raun illmögulegt eða útilokað. Aðeins sé um varúðarráðstöfun að ræða. Innflutningsbannið var sett á af Sernapecska eftir flöggun frá Alþjóðadýraheilbrigðismálastofnuninni í París.
Mest lesið Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Vera sem varð til eftir gott vinkonuspjall á sunnudegi Atvinnulíf Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Viðskipti innlent Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Samstarf Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Forstjórinn sem byrjar daginn á því að horfa á fallegu konuna sína Atvinnulíf Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Fleiri fréttir Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Sjá meira