Halli á vöruskiptum fyrstu níu mánuði ársins Sæunn Gísladóttir skrifar 30. október 2015 13:21 Vöruskiptajöfnuðurinn var hagstæðari en á sama tíma árið áður. Vísir/GVA
Fyrstu níu mánuði ársins 2015 voru fluttar út vörur fyrir 480,1 milljarð króna en inn fyrir 494,8 milljarða króna fob (528,2 milljarða króna cif). Halli var því á vöruskiptum við útlönd sem nam 14,7 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruskiptin óhagstæð um 15,3 milljarða á gengi hvors árs. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 0,6 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar. Í septembermánuði voru fluttar út vörur fyrir rúma 47,8 milljarða króna og inn fyrir tæpa 54,3 milljarða króna fob (57,9 milljarða króna cif). Vöruskiptin í september, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 6,4 milljarða króna. Í september 2014 voru vöruskiptin óhagstæð um 10 milljarða króna á gengi hvors árs. Fyrstu níu mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruútflutnings 50,7 milljörðum hærra eða 11,8%, á gengi hvors árs, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 53,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 16,2% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á áli og álafurðum. Sjávarafurðir voru 41,9% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 12,1% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á fiskimjöli. Fyrstu þrjá ársfjórðunga ársins 2015 var verðmæti vöruinnflutnings 50,1 milljarði hærra eða 11,3%, á gengi hvors árs, en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hrá- og rekstrarvöru og flugvéla. Á móti dróst innflutningur á eldsneyti saman.
Mest lesið Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Vera sem varð til eftir gott vinkonuspjall á sunnudegi Atvinnulíf Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Viðskipti innlent Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Samstarf Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Forstjórinn sem byrjar daginn á því að horfa á fallegu konuna sína Atvinnulíf Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Fleiri fréttir Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Sjá meira