Sendu tæplega milljón tölvupósta vegna leiðréttingarinnar Stefán Ó. Jónsson skrifar 1. nóvember 2015 10:10 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson kynna hér áformin í Iðnó á fyrri hluta síðasta árs. Vísir/valli
Embætti ríkisskattstjóra sendi alls rúmlega 924 þúsund tölvupósta vegna húsnæðiskuldaniðurfellingar stjórnvalda, sem í daglegu tali er kölluð „leiðréttingin“. Þá bárust embættinu rúmlega 27 þúsund tölvupóstar og 68 þúsund símtöl vegna leiðréttingarinnar. Þetta kemur fram í uppgjöri Helgu Valborgar Steinarsdóttur, verkefnisstjóra á aðalskrifstofu ríkisskattstjóra, í fréttabréfinu Tíund sem kom út á dögunum. Í grein Helgu, sem ber nafnið Við lok leiðréttingar, rekur hún í stuttu máli vinnuna sem bjó að baki hinni fordæmalausu og flóknu aðgerð sem skuldaniðurfellingin var.Verkefnisstjórinn Helga Valborg Steinarsdóttirmynd/TíundStarfsmenn embættisins þurftu að vinna hratt að viðamiklu framkvæmdinni sem Helga segir að hafi „með ýmsum óvæntum uppákomum og ófyrirséðum annmörkum“ reynt „iðulega á ystu þolmörk þeirra sem henni sinntu.“ Alls voru 51 þúsund fasteignaveðlán lækkuð og 115 þúsund slík lán endurreiknuð í aðgerðinni en um 250 starfsmenn komu að henni með einum eða öðrum hætti. Þessir starfsmenn hafa undanfarið spurt sig hvaða lærdóm megi draga af öllu því sem genguð hefur á hjá embætti ríkisskattstjóra undanfarið eitt og hálft ár frá því að ákveðið var að ráðast í skuldalækkunina að sögn Helgu. „Efst í huga er hvílík staðfesting fengist hefur á kostum rafrænna lausn við svo umfangsmikil störf sem þau er leiddu af Leiðréttingunni,“ segir Helga og bætir við að enginn vafi hafi leikið á að slíkar lausnir hafi gegnt lykilhlutverki í því að afgreiða þann aragrúa mála sem lá fyrir – „svo skjótt sem raun reyndist.“ Í úttektinni kemur fram að um 97 prósent umsækjenda hafi þannig samþykkt lækkunina með rafrænum skilríkjum. Þá fékk vefurinn leidretting.is sem komið var upp af þessu tilefni um 1,2 milljónir heimsókna frá 146 ríkjum. Nánar má skyggnast inn í aðgerðina í Tíund.
Mest lesið Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Vera sem varð til eftir gott vinkonuspjall á sunnudegi Atvinnulíf Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Samstarf Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Sjá meira