Safna fyrir stafrænu sýningarkerfi Stefán Árni Pálsson skrifar 25. nóvember 2015 17:30 Skjaldborgarbíó á Patró. vísir
Aðstandendur Skjaldborgar – hátíðar íslenskra heimildamynda, vilja vekja athygli á söfnun sem nú stendur yfir á Karolina fund til kaupa á stafrænu sýningarkerfi fyrir Skjaldborgarbíó á Patreksfirði. Í tilkynningu frá aðstandendum Skjaldborgar segir að sé kappsmál að nútímavæða þetta sögulega og fallega kvikmyndahús svo hægt sé að halda úti reglulegum kvikmyndasýningum í húsinu eins og gert hefur verið undanfarna áratugi. „En þetta er ekki síður hagsmunamál fyrir heimildamyndahátíðina sem dregur nafn sitt af bíóinu og á því og aðstandendum þess svo mikið að þakka. Með hinu nýja og glæsilega sýningakerfi munu myndgæði bíósins aukast til muna, bæði kvikmyndagerðarfólki og hinum almenna áhorfanda til mikillar ánægju og yndisauka,“ segir í tilkynningunni. Hátíðin, sem mun fagna 10 ára afmæli í vor, vill að leggja þessu góða málefni lið og mun standa fyrir góðgerðarsamkomu í Bíó Paradís næstkomandi laugardag kl. 16 – 18. Húsband hátíðarinnar The Shits, sem allir gestir Skjaldborgar ættu að gjörþekkja, mun flytja nokkur ný og brakandi fersk lög. Þá verður bjórsala á staðnum og mun allur ágóði renna til kaupa á sýningakerfinu.
Bíó og sjónvarp Mest lesið „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Tónlist Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Lífið Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Lífið Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Lífið Girnileg pizzaloka sem þú verður að prófa! Lífið samstarf „Töluvert álag á líkama sem nálgast sextugt“ Lífið samstarf Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Lífið Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Lífið Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Lífið Fleiri fréttir Bestu hlutverk Michaels Madsen: Óþokki með viskýrödd og uppáhald Tarantino Djöfullinn klæðist Prada á ný Grindavík sigursæl erlendis Skapandi sumarstarf varð að þætti á laugardagskvöldum á RÚV Næsti Bond undir þrítugu og þrír efstir á blaði Villeneuve leikstýrir næstu mynd um James Bond Ólafur Darri og Hera Hilmars halda áfram að heilla heiminn Amatörar, hvalfirskur bóndi og barátta við borgina verðlaunuð Sjá meira