Lífið

„Þetta er bara væmin tónlist fyrir fokking ömmur“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Adela hefur slegið í gegn.
Adela hefur slegið í gegn. Vísir/Getty
Noel Gallagher, fyrrum meðlimur í hljómsveitarinnar Oasis, segir að nýja platan frá Adele innihaldi aðeins væmin lög sem eigi heima í spilaranum hjá ömmu.

Adele hefur selt hátt í fimm milljónir eintaka af plötunni 25 en hún kom út fyrir aðeins þremur vikum.

„Þetta er bara væmin tónlist fyrir fokking ömmur,“ segir Gallagher í viðtali við Music Feeds.

„Ef einhver vill heyra mína skoðun á Adele þá segi ég hana. Ég sé ekki hvað er eiginlega svona sérstakt við hana. Ég þoli ekki tónlistina hennar.“

Noel Gallagher lætur oft allt flakka.vísir/getty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.