Grófu upp Nei er ekkert svar Adda Soffia Ingvarsdottir skrifar 3. febrúar 2015 09:00 Hér má sjá Ingibjörgu Stefánsdóttur í hlutverki sínu ásamt Helgu Brögu Jónsdóttur. Vísir
Íslenska kvikmyndin Nei er ekkert svar verður sýnd á skemmtistaðnum Húrra í kvöld. Myndin, sem kom út í lok árs 1995, var mjög umdeild á sínum tíma. Hún var ekki gefin út á myndbandi eftir sýningar í bíó og hefur verið nánast ófáanleg. „Við þekktum bara aðila sem tengist framleiðslu myndarinnar og hann gat útvegað okkur „master“ af myndinni, sem er ekki gömul léleg VHS-útgáfa heldur „orginal“ af filmunni,“ segir Jóhann Ævar Grímsson, sem ásamt Hugleik Dagssyni stendur fyrir sýninguni. Þeir eru með þáttinn Hefnendurnir á Alvarpinu og standa fyrir bíókvöldum fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði, þar sem þeir að eigin sögn sýna „óheinu börnin“ í kvikmyndasögunni. „Þessi mynd hlaut þann vafasama heiður að vera fyrsta leikna íslenska myndin sem var bönnuð börnum yngri en sextán ára. Það mætti nú mögulega mótmæla því þar sem margar verri myndir voru öllum leyfðar á undan þessari,“ segir hann. Með aðalhlutverk í myndinni fóru þær Heiðrún Anna Björnsdóttir sem lék sveitastelpuna Siggu og Ingibjörg Stefánsdóttir fór með hlutverk Dídí systur hennar. Myndin verður sýnd á Húrra klukkan 20 í kvöld og eru allir velkomnir, frítt inn og popp í boði hússins.
Bíó og sjónvarp Mest lesið Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Vilja stimpla sig inn með stæl Lífið Söngvakeppnin og stríðsrekstur Ísraels: „Ég er stolt af landinu mínu“ Lífið Blondie verður stjarnan á RIFF um helgina Lífið Bók skilað eftir 56 ára útlán Lífið Stjörnufans í sumarselskap Lífið Fleiri fréttir Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Fyrsta íslenska myndin í Cannes Premiere-flokki Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Viðræður hafnar um framhald á Adolescence Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Sjá meira